Skokkað af stað í skrúðgöngunni. Texti og myndir: VAKS.

Myndasyrpa – Stuð á Skammhlaupi í FVA

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skammhlaup 2022 í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fór nýverið fram. Hófst fjörið á hádegi með skrúðgöngu nemenda í lögreglufylgd frá skólanum niður í íþróttahúsið við Vesturgötu þar sem keppnin hófst.  Þar var keppt í ullarsokkaboðhlaupi, þrautabraut, stígvélasparki, limbói og reiptogi. Að því loknu var farið aftur upp í skóla þar sem alls kyns þrautir voru lagðar fyrir nemendur og endaði keppnin á sal þar sem þau tóku þátt til að mynda í planki, að verpa eggjum, „silly walk“ og örleikriti. Sigurvegarar dagsins voru fjólubláa liðið og fögnuðu þau því ásamt öðrum nemendum skólans á balli um kvöldið. Blaðamaður Skessuhorns fylgdist með Skammhlaupinu og smellti af nokkrum myndum.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"52315,52316,52317,52318,52319,52320,52321,52322,52323,52324\"]",
  "innerBlocks": []
}
Myndasyrpa - Stuð á Skammhlaupi í FVA - Skessuhorn