Nótan var haldin í Stykkishólmskirkju

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Um þarsíðustu helgi var haldin mikil tónlistarveisla um land allt, Nótan uppskeruhátíð tónlistarskólanna. Tónlistarskólar á Vesturlandi og Vestfjörðum komu saman í Stykkishólmskirkju laugardaginn 19. mars og segir á vef Grundarfjarðarbæjar að tónleikarnir hafi verið hinir glæsilegustu. Nemendur sex tónlistarskóla komu fram og stóðu sig allir með prýði.\r\n\r\nFulltrúar tónlistarskólans í Grundarfirði voru þeir Einir Hugi Guðbrandsson og Haukur Orri Bergmann Heiðarsson. Þeir fluttu lagið Mo´Better Blues eftir Bill Lee úr samnefndri kvikmynd á rafmagnsgítar og léku meðal annars báðir snilldar sóló á gítarinn. Það má svo sannarlega segja að framtíðin sé björt hjá öllum þeim hæfileikaríku nemendum sem þarna komu fram.",
  "innerBlocks": []
}
Nótan var haldin í Stykkishólmskirkju - Skessuhorn