Nemendur úr Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Ljósm. af vefsíðu Borgarbyggðar.

Leikritið Bróðir minn Ljónshjarta sett upp

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar setur upp leikritið Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren nú í byrjun apríl. Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Theodóra Þorsteinsdóttir hafa í vetur verið að vinna með leikverk eftir Astrid Lindgren. Sigríður útbjó leikgerð með atriðum úr leikritinu og er tónlistin fengin úr ýmsum áttum, meðal annars má heyra íslensk þjóðlög, erlend ljóð, óperukór og söngleikjalög í sýningunni. Sigríður Ásta leikstýrir söngleiknum, Theodóra er tónlistarstjóri og Jónína Erna Arnardóttir leikur með á píanó. Fram kemur á vefsíðu Borgarbyggðar að nemendur söngleikjadeildar á vorönninni séu alls 20 og á aldrinum 6-15 ára.\r\n\r\nÞað má með sanni segja að það sé Astrid Lindgren þema í skólanum þennan veturinn en fyrir áramótin var söngleikurinn Ronja ræningjadóttir settur upp í skólanum. Leikritið um bræðurna Ljónshjarta er hugljúf saga um lífið, dauðann, vináttuna og kærleikann sem á erindi við alla.\r\n\r\nTvær sýningar verða í Tónlistarskólanum, Borgarbraut 23 í Borgarnesi; föstudaginn 1. apríl kl. 17:00 og laugardaginn 2. apríl kl. 13:00.\r\n\r\nHægt er að panta miða á sýninguna hjá skólastjóra í tölvupósti á tonlistarskoli@borgarbyggd.is (ekki posi á staðnum). Aðgangseyrir er kr. 1000 og fyrir grunnskólabörn kr. 500.",
  "innerBlocks": []
}
Leikritið Bróðir minn Ljónshjarta sett upp - Skessuhorn