{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðasta fimmtudag voru samþykkt kaup á dælubíl fyrir Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar samkvæmt fyrirliggjandi tilboði frá Ólafi Gíslasyni & Co hf. að fjárhæð um 92 milljónir króna. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti sömuleiðis fyrir sitt leyti á fundi sínum í liðinni viku að tilboðinu verði tekið. Tilboðið var það eina sem barst en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 70 milljónir króna. Bæjarráð Akraness leggur áherslu á að bíllinn komist sem fyrst í rekstur sem gæti orðið á árinu 2023 en takist það ekki er kostur á að afhending og greiðsla verði í janúar 2024. Málið komi að nýju til ákvörðunar þegar endanleg útfærsla þess liggur fyrir. Gert er ráð fyrir að kostnaðarskipting á milli Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar verði samkvæmt gildandi samstarfssamningi sveitarfélaganna.",
"innerBlocks": []
}