Skátar funda á Bifröst um helgina

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skátaþing verður haldið á Bifröst um helgina, dagana 1. - 3. apríl. Þar verður í forgrunni að vinna með uppfærðan dagskrárramma skátastarfsins. Rúmlega hundrað skátar í leiðtogahlutverkum munu mæta og leggja línur fyrir starfið á næstunni. Sjálfkjörið er í öll embætti á þinginu. Marta Magnúsdóttir úr Grundarfirði, sem verið hefur skátahöfðingi í 5 ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Hún var yngsti skátahöfðingi sögunnar þegar hún tók við og í hennar tíð hefur verið mikil áhersla á þátttöku ungmenna í stjórnum og ráðum skátahreyfingarinnar.\r\n\r\nHarpa Ósk Valgeirsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, sem einnig hefur setið í stjórn sl. 5 ár og nú síðast sem aðstoðarskátahöfðingi býður sig fram í embættið og verður hún sjálfkjörin. Harpa hefur leitt dagskrárráð skáta og beitt sér fyrir leiðtogaþjálfun. „Það hefur verið einstaklega gleðilegt að finna stuðning og hvatningu úr skátasamfélaginu,” segir Harpa. „Ég finn mikinn kraft meðal skáta eftir þá ládeyðu sem Covid hafði í för með sér,” segir hún og er bjartsýn um framhaldið. „Við viljum að skátahreyfingin sé aðgengileg öllum börnum og við bjóðum eldri skáta velkomna til verkefna.”\r\n\r\nÁ skátaþinginu verður mikil áhersla á samhæfingu og samtal um dagskrárramma skátastarfsins, bæði heildarrammann sem og einstaka aldursbil. Skátarnir leggja áherslur á heildstæða og ævintýralega dagskrá. Í stefnu skátanna sem samþykkt var á síðasta skátaþingi er lögð áhersla á stuðningsefni fyrir skátaforingja, skátaaðferðina, dagskrárhringinn, flokkakerfið og hvatakerfið. Allt eru þetta þættir sem auðvelda skátafélögunum að innleiða ævintýralegt og metnaðarfullt skátastarf.\r\n\r\nFram kemur í tilkynningu að Harpa Ósk og Marta séu sammála um að mikilvægt sé fyrir skátahreyfinguna að eiga þetta samtal og eru ánægðar með hve margir starfandi skátaforingjar ætla að sækja skátaþingið, auk stjórna skátafélaganna í landinu.",
  "innerBlocks": []
}
Skátar funda á Bifröst um helgina - Skessuhorn