Fréttir

true

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar

Páskaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram föstudaginn 8. apríl í húsnæði Samfylkingarinnar við Stillholt 16-18 frá kl. 12:30-16:30. Hægt er að sækja um í síma 859-3000 og í síma 859-3200 dagana 31. mars, 1. apríl og mánudaginn 4. apríl, frá kl 11-13. Einnig má sækja um á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com. Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn…Lesa meira

true

Flóttafólk væntanlegt á Bifröst í næstu viku

Eins og greint var frá í Skessuhorni í síðustu viku ætlar Háskólinn á Bifröst að leggja til húsnæði til móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Móttaka fólksins er unnin í samstarfi skólans, Borgarbyggðar, ríkisins og Rauða kross Íslands og er nú unnið hörðum höndum að undirbúningi fyrir komu flóttafólksins. „Við gerum ráð fyrir að fyrstu gestir komi…Lesa meira

true

Magnús og Saxhamar taka þátt í netaralli Hafró

Netarall Hafrannsóknarstofnunar hófst í gær og taka sex bátar þátt í verkefninu; Magnús SH í Breiðafirði, Saxhamar SH í Faxaflóa, Þórsnes SH frá Reykjanesi að Þrídröngum, Friðrik Sigurðsson ÁR frá frá Þrídröngum að Skeiðarárdjúpi, Sigurður Ólafsson SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum og Hafborg EA fyrir Norðurlandi. Netarallið fer þannið fram að um 45-60 trossur eru…Lesa meira

true

Í dag hefur fólk bankann í vasanum

Nú um mánaðamótin lætur Steinunn Ásta Guðmundsdóttir af störfum hjá Arion banka í Borgarnesi. Tæp 45 ár eru liðin frá því hún hóf störf við Sparisjóð Mýrasýslu í Borgarnesi sem síðar rann inn í bankann sem heitir nú Arion banki. Við ráðningu haustið 1977 var hún 13. starfsmaður bankans. Eftir það óx sjóðurinn að umfangi…Lesa meira

true

Bingó í Heiðarskóla til styrktar hjálparstarfi í Úkraínu

Umhverfisnefnd Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit hefur árlega reynt að láta gott af sér leiða með einhverjum hætti og gjarnan tekið þátt í verkefninu Jól í skókassa. Nefndin ákvað að gera það ekki á þessu skólaári og finna umhverfisvænni leið til að gera góðverk. Var því ákveðið að safna fjármunum og styrkja gott málefni. Ætlar nefndin að…Lesa meira

true

Hvað eru skinnhandrit og af hverju þarf að læsa þau niður?

Dagana 6. til 9. apríl fær miðstig nokkurra grunnskóla á Vesturlandi óvenjulega heimsókn. Þar er á ferðinni kynning á sjálfum handritunum undir heitinu Bál tímans – kveikjum ljós um miðaldahandritin! Bók Arndísar Þórarinsdóttur er þungamiðja kynningarinnar sem höfundurinn annast ásamt Evu Maríu Jónsdóttur miðaldafræðingi. Það er List fyrir alla sem sendir þessa fulltrúa Árnastofnunar sem…Lesa meira

true

Kanna hagkvæmni varmadæla þar sem hitaveita er ekki í boði

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í síðustu viku var samþykkt með fimm atkvæðum tillaga þess efnis að gerður verði verksamningur við Hagvarma ehf. um að meta hagkvæmni þess að setja upp varmadælukerfi til hitunar á rafkyntu húsnæði í Hvalfjarðarsveit. Verkið felur í sér að kanna aðstæður í þeim íbúðarhúsum og/eða lögheimilum þar sem vilji er til…Lesa meira

true

Verðlaun veitt í smásagnakeppni

Júlíana hátíð sögu og bókar var haldin í Stykkishólmi í liðinni viku. Hátíðin var sett fimmtudaginn 24. mars í Stykkishólmskirkju. Þar var boðið upp á tónlistaratriði frá Söngsveitnni Blæ og Litlu Lúðró. Verðlaunahafar í smásagnakeppni hátíðarinnar voru tilkynntir við setninguna. Fyrstu verðlaun hlaut Unnur Guttormsdóttir fyrir söguna Friðardúfan. Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir hlaut önnur verðlaun fyrir…Lesa meira

true

Jarðsig úr gamla veginum á Búlandshöfða

Í vatnsveðrinu sem gekk yfir síðasta laugardag var asahláku enda mikið af snjó sem bráðnaði hratt og hitastig hærra en undanfarnar vikur. Þá hrundi úr vegkantinum á gamla veginum um Búlandshöfða og flæddi aur og drulla yfir þjóðveginn milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur. Verktakar brugðust skjótt við og hreinsuðu drulluna af veginum en gamli vegkanturinn þar…Lesa meira

true

Ráðinn sölustjóri hjá Origo

Skagamaðurinn Ísleifur Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn sölustjóri gæða- og innkaupalausna hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo og verður hlutverk hans að stýra og efla sölustarf deildarinnar. Í tilkynningu segir að Ísleifur Örn hafi undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri innflutningsfyrirtækisins Habitus. Þá hefur hann einnig starfað sem sölu- og markaðsstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Safari Quads og tekið þátt í hinum…Lesa meira