
Kanna á hagkvæmni þess að setja upp varmadælur þar sem hitaveita er ekki í boði. Ljósm. arg.
Kanna hagkvæmni varmadæla þar sem hitaveita er ekki í boði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í síðustu viku var samþykkt með fimm atkvæðum tillaga þess efnis að gerður verði verksamningur við Hagvarma ehf. um að meta hagkvæmni þess að setja upp varmadælukerfi til hitunar á rafkyntu húsnæði í Hvalfjarðarsveit. Verkið felur í sér að kanna aðstæður í þeim íbúðarhúsum og/eða lögheimilum þar sem vilji er til uppsetningar varmadælu og velja hagkvæmasta varmadælukerfið. Hvað varmadælur snertir getur valið staðið á milli þess að nota vatn í vatn, loft í vatn eða loft í loft eftir aðstæðum á hverjum stað. Veitt verður ráðgjöf varðandi mögulegar endurbætur á hitakerfi húsa til að hámarka orkunýtingu á hverjum stað.\r\n\r\nSveitarstjórn samþykkti jafnframt að fela mannvirkja- og framkvæmdanefnd að gera drög að reglum um stuðning vegna uppsetninga varmadæla í Hvalfjarðarsveit.",
"innerBlocks": []
}