Horft yfir háskólaþorpið á Bifröst. Ljós. James Einar Becker.

Flóttafólk væntanlegt á Bifröst í næstu viku

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eins og greint var frá í Skessuhorni í síðustu viku ætlar Háskólinn á Bifröst að leggja til húsnæði til móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Móttaka fólksins er unnin í samstarfi skólans, Borgarbyggðar, ríkisins og Rauða kross Íslands og er nú unnið hörðum höndum að undirbúningi fyrir komu flóttafólksins. „Við gerum ráð fyrir að fyrstu gestir komi á Bifröst í næstu viku. Við vitum ekki nákvæmlega hvenær fólkið kemur eða hversu margir en við stefnum á að hluti húsnæðisins verði tilbúið í lok þessarar viku. Háskólanum á Bifröst hafa borist margar gjafir til að hægt sé að standsetja húsnæðið og eru á fullu í undirbúningi húsnæðisins,“ segir Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri í Borgarbyggð í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\n<strong>Skjól á Bifröst</strong>\r\n\r\nHúsnæðið á Bifröst er hugsað sem skammtímaúrræði þar sem flóttafólkið getur dvalið í 3-12 vikur á meðan varanlegra húsnæði finnst. „Þetta er það sem við köllum skjól en fólkið verður að fara úr úrræðum á vegum Útlendingastofnunar innan tveggja vikna frá dvalarleyfi og á svo skömmum tíma verður ekki tilbúið varanlegt húsnæði fyrir þann fjölda sem er að koma til okkar. Þetta úrræði er því svona milliplan þar sem gestirnir okkar geta upplifað öryggi og fá aðstoð þar til þeir komast í varanlegt úrræði,“ útskýrir Þórdís og bætir við að Fjölmenningarsetrið komi svo til með að vinna með fólkinu til að finna framtíðarhúsnæði.\r\n\r\nEn hvernig verður tekið á móti þessu fólki? „Við lítum á flóttafólkið sem gesti okkar og munum að sjálfsögðu sýna þeim gestrisni. Við erum komin með verkefnastjóra til að halda utan um þetta verkefni. Svo erum við með félagsráðgjafa, sálfræðing og hjúkrunarfræðing að vinna með okkur. Við ætlum að bjóða upp á kennslu fyrir börn á grunnskólaaldri á Bifröst og hafa margir kennarar í Borgarbyggð sýnt áhuga á að koma að þeirri vinnu. En við eigum eftir að sjá hvernig hópurinn er samsettur sem kemur til okkar. Kannski eru kennarar eða einhverjir með reynslu af kennslu í hópnum sem hafa áhuga á að hjálpa með kennslu. Við vitum að það er mikill mannauður í þessum gestum og það eru örugglega einhverjir sem vilja leggja hönd á plóg og því um að gera að virkja þau,“ segir Þórdís og bætir við að verið sé að skoða hvort börn á leikskólaaldri geti ekki fengið að vera eitthvað á leikskóla Hjallastefnunnar á Bifröst.\r\n\r\n<strong>Góð aðstaða</strong>\r\n\r\nAðspurð segir Þórdís aðstæðurnar á Bifröst henta mjög vel til að taka á móti flóttafólki í skammtímaúrræði. „Við erum með stýrihóp sem heldur utan um þetta verkefni og þar er fólk með gríðarlega þekkingu á móttöku flóttafólks og hvernig sé best að bjóða gestina okkar velkomna og að aðstoða það við að öðlast eins eðlilegt líf og hægt er. Það verður boðið upp á akstur daglega í Borgarnes sem þau geta nýtt sér og svo er verið að skoða hvort hægt sé að setja upp verslun á staðnum með helstu nauðsynjum. Bifröst býður upp á ýmislegt, þar eru heitir pottar, líkamsrækt, leikskóli, leikvöllur, gönguleiðir og mikil ró og fegurð. Það er líka lítil verslun í Hreðavatnsskála og svo eru veitingastaðir á svæðinu. Það er tíu mínútna akstur í næstu sundlaug og íþróttahús og rúmlega tuttugu mínútur í Borgarnes í alla þjónustu. Við erum að leita leiða til að tryggja að þau eigi sem auðveldast með að sækja þjónustuna,“ svarar Þórdís.\r\n\r\n<strong>Hvernig er hægt að hjálpa?</strong>\r\n\r\nRauði krossinn kemur að verkefninu og mun til að mynda aðstoða við móttöku fólksins og öflun fatnaðar. Áhugasamir eru hvattir til að bjóða sig fram sem sjálfboðaliðar hjá Rauða krossinum þar sem hægt verður að hjálpa með mismunandi verkefni sem tengjast móttöku gestanna. Háskólinn á Bifröst mun sjá um allt sem tengist húsnæðinu og ef fólk hefur húsgögn eða annan húsbúnað til að gefa er hægt að hafa samband við þau í netfangið ukraina@bifrost.is. Þá er einnig hægt að hafa samband við verkefnastjóra á netfangið ukraina@borgarbyggd.is til að bjóða fram aðstoð. „Ég er mjög bjartsýn á að þetta muni ganga vel,“ segir Þórdís að lokum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52291\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52291 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Flottafolk-vaentanlegt-a-Bifrost-i-naestu-viku_2-600x594.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"594\" /> Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Flóttafólk væntanlegt á Bifröst í næstu viku - Skessuhorn