Bingó í Heiðarskóla til styrktar hjálparstarfi í Úkraínu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Umhverfisnefnd Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit hefur árlega reynt að láta gott af sér leiða með einhverjum hætti og gjarnan tekið þátt í verkefninu Jól í skókassa. Nefndin ákvað að gera það ekki á þessu skólaári og finna umhverfisvænni leið til að gera góðverk. Var því ákveðið að safna fjármunum og styrkja gott málefni. Ætlar nefndin að halda bingó, fatamarkað og vöfflukaffi í Heiðarskóla á morgun fimmtudag og að þessu sinni mun allur ágóði renna til hjálparstarfs í Úkraínu.\r\n\r\nBoðið verður upp á bingó með glæsilegum vinningum og þeir sem vilja geta komið með föt á slá til að selja til að styrkja málefnið. Þá verður hægt að setjast niður yfir kaffi og vöfflu og spjalla við fólk eftir langt hlé frá samkomum. Bingóspjaldið verður selt á 500 krónur og vaffla og kaffi á 1000 krónur. Enginn posi er á staðnum svo það þarf að koma með pening.\r\n\r\nViðburðurinn verður í Heiðarskóla og hefst kl. 18:00 og eru allir velkomnir.",
  "innerBlocks": []
}
Bingó í Heiðarskóla til styrktar hjálparstarfi í Úkraínu - Skessuhorn