Jarðsig úr gamla veginum á Búlandshöfða

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í vatnsveðrinu sem gekk yfir síðasta laugardag var asahláku enda mikið af snjó sem bráðnaði hratt og hitastig hærra en undanfarnar vikur. Þá hrundi úr vegkantinum á gamla veginum um Búlandshöfða og flæddi aur og drulla yfir þjóðveginn milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur. Verktakar brugðust skjótt við og hreinsuðu drulluna af veginum en gamli vegkanturinn þar sem vindmælirinn er staðsettur lætur örlítið á sjá eftir hamaganginn.",
  "innerBlocks": []
}
Jarðsig úr gamla veginum á Búlandshöfða - Skessuhorn