Starfsfólk Sparisjóðs Mýrasýslu á sjötíu ára afmæli hans árið 1983.

Í dag hefur fólk bankann í vasanum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú um mánaðamótin lætur Steinunn Ásta Guðmundsdóttir af störfum hjá Arion banka í Borgarnesi. Tæp 45 ár eru liðin frá því hún hóf störf við Sparisjóð Mýrasýslu í Borgarnesi sem síðar rann inn í bankann sem heitir nú Arion banki. Við ráðningu haustið 1977 var hún 13. starfsmaður bankans. Eftir það óx sjóðurinn að umfangi og starfsemi, var síðan sameinaður öðrum banka og starfsmennirnir skiptu tugum. En hin síðari ár hefur sökum tækniframfara starfsfólki bankastofnana fækkað og þegar Steinunn Ásta kveður bankann sem hún hefur starfað við öll þessi ár verða einmitt 13 starfsmenn eftir í Arion banka á Vesturlandi.\r\n\r\nBlaðamaður Skessuhorns settist niður með Steinunni Ástu á heimili hennar í Brautarholti ofan við Borgarnes. Þar hefur hún haft vinnustöð sína frá því Covid-19 hóf innreið sína fyrir tveimur árum.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal í Skessuhorni sem kom út í dag. Fyrirsögnin, Í dag hefur fólk bankann í vasanum, vísar til þeirra miklu tækniframfara sem eru að eiga sér stað í bankaþjónustu hvarvetna í heiminum.</em>",
  "innerBlocks": []
}