{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skagamaðurinn Ísleifur Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn sölustjóri gæða- og innkaupalausna hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo og verður hlutverk hans að stýra og efla sölustarf deildarinnar. Í tilkynningu segir að Ísleifur Örn hafi undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri innflutningsfyrirtækisins Habitus. Þá hefur hann einnig starfað sem sölu- og markaðsstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Safari Quads og tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum tengt stjórnun og stefnumótun. Ísleifur Örn stundaði og lauk BS gráðu í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun frá University of Alabama in Huntsville í Bandaríkjunum og Háskóla Íslands.",
"innerBlocks": []
}