Tilkynna þarf breytt heimilisfang fyrir næsta miðvikudag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tilkynningar um breytt lögheimili þurfa að hafa borist Þjóðskrá fyrir hádegi miðvikudaginn 6. apríl nk. til að öðlast gildi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 14. maí 2022. Skráning kjósanda á kjörskrá miðast við skráningu lögheimilis hans kl. 12 á viðmiðunardegi kjörskrár þann 6. apríl 2022. „Því er mikilvægt að tilkynningar um lögheimilisflutning berist Þjóðskrá eigi síðar en 5. apríl svo búið verði að skrá breytingarnar í þjóðskrá fyrir útgáfu kjörskrár. Þann 8. apríl n.k. er gert ráð fyrir að opnað verði fyrir vefuppflettið „Hvar á ég að kjósa“ á skra.is þar sem einstaklingar geta athugað hvar þeir eigi að kjósa,“ segir í tilkynningu frá Þjóðaskrá. Finna má ýmsar frekari upplýsingar um kosningarnar á kosningar.is",
"innerBlocks": []
}
Tilkynna þarf breytt heimilisfang fyrir næsta miðvikudag - Skessuhorn