
Áslaug Arna og Hólmfríði en ráðning hennar var tilkynnt á starfsmannafundi í dag.
Hólmfríður skipuð rektor Háskólans á Hólum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar hefur skipað dr. Hólmfríði Sveinsdóttur rektor Háskólans á Hólum til næstu fimm ára. Skipan Hólmfríðar er samkvæmt einróma ákvörðun háskólaráðs frá 25. mars sl. um að tilnefna hana sem næsta rektor skólans. Tekur hún við starfinu af Erlu Björk Örnólfsdóttur.\r\n\r\nHólmfríður er með meistaragráðu í næringarfræði frá Justus Liebig háskólanum í Giessen í Þýskalandi og doktorsgráðu í matvælafræði frá Háskóla Íslands. Hún leiddi rannsóknir og þróun hjá Fisk Seafood um árabil og stýrði fyrir þeirra hönd m.a. samstarfsverkefni með Skaganum 3X sem miðaði að því að breyta kælingu á afla á millidekki. Hólmfríður stýrði einnig uppbyggingu á Iceprotein og Protis sem var fyrsta íslenska fyrirtækið til að framleiða fiskprótín og kollagen og setja á markað sem fæðubótarefni. Í dag starfar Hólmfríður í eigin fyrirtæki sem heitir Mergur Ráðgjöf og er verkefnastjóri í fjölmörgum nýsköpunarverkefnum á landsbyggðinni.",
"innerBlocks": []
}