Rauða fjöðrin seld til styrktar kaupum á leiðsöguhundum fyrir blinda

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Lionshreyfingin á Íslandi safnar fé á nokkurra ára fresti til góðra málefna undir merkinu „Rauða fjöðrin“. Nú hafa Lionshreyfingin og Blindrafélagið tekið höndum saman um átak til að tryggja framboð af leiðsöguhundum í landinu til nýrra notenda og til endurnýjunar þeirra hunda sem nú þegar eru til staðar. Samstarf Lions og Blindrafélagsins byggir á gömlum merg enda hefur Lionshreyfingin stutt við blinda og sjónskerta með myndarlegum hætti víðs vegar um heiminn í liðlega 100 ára sögu hreyfingarinnar.\r\n\r\nÍ þessari landssöfnun Lionshreyfingarinnar undir merkjum rauðu fjaðrarinnar er það nýmæli að styrkþeginn, Blindrafélagið, kemur mun meira að verkefninu með virkri þátttöku en í fyrri söfnunum enda er þörfin brýn.  Söfnunin er upphafsátak í þriggja ára verkefni Blindrafélagsins um fjölgun leiðsöguhunda. Blindrafélagið beitir sér fyrir því að tryggja félagsmönnum sínum aðgang að þjálfuðum leiðsöguhundum.\r\n\r\nLionsklúbbur Akraness mun verða með sölu á rauðu fjöðrinni við Bónus á Smiðjuvöllum  föstudaginn 1. apríl og laugardaginn 2. apríl.",
  "innerBlocks": []
}
Rauða fjöðrin seld til styrktar kaupum á leiðsöguhundum fyrir blinda - Skessuhorn