Fréttir

true

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur opnað í Búðardal í næstu viku

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur Dalabyggðar við Miðbraut 11 í Búðardal verður formlega opnað næstkomandi miðvikudag 30. mars kl. 16:00. Byrjað var að leggja drög að stofnun setursins árið 2020 og er það ætlað frumkvöðlum, námsmönnum eða öðru hugmyndaríku fólki sem gæti notað aðstöðuna. „Markmið setursins er að efla atvinnulíf í Dalabyggð með sérstaka áherslu á nýsköpun…Lesa meira

true

Börn fædd út júlí 2021 tryggð leikskólapláss á Akranesi í haust

Á þriðjudaginn var fundur hjá skóla- og frístundaráði Akraneskaupstaðar. Í fundargerð kemur fram að undanfarin fjögur ár hafi ráðið lagt áherslu á að bæta aðstæður barna og fjölskyldna þeirra með tilliti til daggæslumála. Ráðist hafi verið í byggingu nýs glæsilegs sex deilda leikskóla við Asparskóga sem verður tekinn í notkun í haust þegar leikskólinn Garðasel…Lesa meira

true

Magnús Þór á förum frá Faxaflóahöfnum og í forstjórastól Rarik

Magnús Þór Ásmundsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Faxaflóahafna frá árinu 2020, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá fyrirtækinu. Tilkynnt hefur verið að Magnús muni taka við starfi forstjóra Rarik ohf. frá 1. maí nk. Í tilkynningu óska Faxaflóahafnir Magnúsi Þór velfarnaðar á þeim vettvangi á sama tíma og honum eru þökkuð vel…Lesa meira

true

Listería fannst í graflaxi

Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á „Úrvals graflaxi“ frá Eðalfiski ehf. vegna listeríu sem fannst í vörum með síðasta notkunardegi á tímabilinu 13.3.2022-11.4.2022.  Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar í varúðarskyni af markaði og sent út fréttatilkynningu. Innköllunin á við eftirfarandi framleiðslulotur: Vöruheiti: Úrvals grafnar sneiðar, Úrvals grafinn lax (bitar), Úrvals grafinn lax (flök). Framleiðandi: Eðalfiskur ehf…Lesa meira

true

Ríkið hættir niðurgreiðslu sýna vegna Covid

Föstudaginn 1. apríl mun falla úr gildi reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna sýnatöku til greiningar á Covid-19. Reglugerðin tók fyrst gildi 16. september sl. og fól í sér að einkaaðilar sem önnuðust hraðpróf til greiningar á Covid-19, t.d. vegna hraðprófsviðburða eða útgáfu vottorða fyrir ferðamenn, gátu boðið þá þjónustu endurgjaldslaust. Frá og með 1. apríl…Lesa meira

true

Sjö fengu heiðursmerki KSÍ

Árið 2020 fagnaði Knattspyrnudómarafélag Akraness 50 ára afmæli sínu en KDA, eins og það þekkist í dag, hefur starfað sleitulaust frá stofnun þess til dagsins í dag og er elsta starfandi knattspyrnudómarafélag landsins. Það voru þeir Guðjón Finnbogason og Friðjón Eðvarðsson ásamt fleiri Skagamönnum sem stofnuðu félagið árið 1970. Í gegnum tíðina hefur KDA átt…Lesa meira

true

Vesturland undir mannfjöldaaukningu á landsvísu

Mannfjöldi á Íslandi 1. janúar 2022 var 376.248 og hafði íbúum fjölgað um 7.456 frá 1. janúar 2021, eða um 2,0%. Alls voru 193.095 karlar og 183.153 konur búsettar á landinu í upphafi ársins og fjölgaði körlum um 2,1% árið 2021 en konum um 1,9%. Íbúum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurlandi, eða um 3,3% á…Lesa meira

true

Nikótínvörur felldar undir lög um rafrettur

Gert er ráð fyrir að sömu reglur muni í meginatriðum gilda um nikótínvörur og nú gilda um rafrettur, samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra sem hann mælti fyrir á Alþingi í síðustu viku. Meginmarkmiðið er að tryggja gæði og öryggi þessa varnings og tryggja með tiltækum ráðstöfunum að börn kaupi hvorki né noti nikótínvörur og rafrettur og áfyllingar…Lesa meira

true

Ríkið gaf völdum aðilum verulegan afslátt við sölu Íslandsbanka

Eftir lokun hlutabréfamarkaða í gær hóf Bankasýsla ríkisins, fyrir hönd fjármálaráðherra, sölu 22,5% eignarhlutar ríkissjóðs í Íslandsbanka. Þeim viðskiptum var lokið síðar um kvöldið. Hlutur ríkisins fer við söluna úr 65 í 42,5%. Mikla athygli hefur vakið að hlutur ríkisins í Íslandsbanka hafi verið seldur með töluverðum afslætti miðað við skráð gengi á útboðsdegi. Svo…Lesa meira

true

Melló frumsýnir Útfjör á morgun

Leiklistaklúbburinn Melló í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi frumsýnir söngleikinn Útfjör eða Fun Home á morgun, fimmtudaginn 24. mars. Söngleikurinn er byggður á teiknimyndasögu Alison Bechdel um ævi hennar og var fyrsti söngleikurinn sem sýndur var á Broadway þar sem aðalpersónan er lesbía. Útfjör er vísun í eitt af störfum fjölskylduföðurins í verkinu sem rekur útfararstofu…Lesa meira