Sumar í Búðardal. Ljósm. sm.

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur opnað í Búðardal í næstu viku

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur Dalabyggðar við Miðbraut 11 í Búðardal verður formlega opnað næstkomandi miðvikudag 30. mars kl. 16:00. Byrjað var að leggja drög að stofnun setursins árið 2020 og er það ætlað frumkvöðlum, námsmönnum eða öðru hugmyndaríku fólki sem gæti notað aðstöðuna. „Markmið setursins er að efla atvinnulíf í Dalabyggð með sérstaka áherslu á nýsköpun og frumkvöðlastarf ásamt því að skapa samfélag fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem eru að vinna að hugmyndum sínum og vilja fullmóta þær, sem og fyrir þá sem vilja skapa sér sín eigin atvinnutækifæri,“ segir á vef Dalabyggðar.\r\n\r\nUppbygging setursins var styrkt af Uppbyggingarsjóði SSV og Nýsköpunarneti Vesturlands og er það samstarfsverkefni Dalabyggðar og nokkurra leiðandi fyrirtækja, stofnana og samtaka. „Þar má nefna EFLU, Kaupfélag Borgfirðinga, Bændasamtök Íslands, Arion banka, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólann á Bifröst og Símenntun.“\r\n\r\nÍ setrinu er samvinnurými þar sem einstaklingar geta leigt borð í þann tíma sem þeir vilja, frá einum degi upp í mánuð. Fyrir frekari spurningar um setrið er hægt að hafa samband við Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, verkefnastjóra hjá Dalabyggð, á netfangið johanna@dalir.is.",
  "innerBlocks": []
}
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur opnað í Búðardal í næstu viku - Skessuhorn