Ríkið gaf völdum aðilum verulegan afslátt við sölu Íslandsbanka
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eftir lokun hlutabréfamarkaða í gær hóf Bankasýsla ríkisins, fyrir hönd fjármálaráðherra, sölu 22,5% eignarhlutar ríkissjóðs í Íslandsbanka. Þeim viðskiptum var lokið síðar um kvöldið. Hlutur ríkisins fer við söluna úr 65 í 42,5%. Mikla athygli hefur vakið að hlutur ríkisins í Íslandsbanka hafi verið seldur með töluverðum afslætti miðað við skráð gengi á útboðsdegi. Svo miklum afslætti að ríkið gaf í raun 2,25 milljarða króna afslátt, en leysti þó til sín 52,5 milljarða króna. Í dag hefur hlutabréfaverð í bankanum farið upp um næstum 5% milli daga.\r\n\r\nÝmsum spurningum er ósvarað um af hverju Bankasýsla ríkisins og fjármálaráðuneytið fara þessa leið við sölu. Til dæmis velta ýmsir því fyrir sér hverjir kaupendurnir séu og hvernig þeir hafi verið valdir. Gera verður ráð fyrir því að Bankasýsla ríkisins og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra svari þessum spurningum á næstu dögum.",
"innerBlocks": []
}
Ríkið gaf völdum aðilum verulegan afslátt við sölu Íslandsbanka - Skessuhorn