
Dalamenn geta glaðst því þar fjölgaði íbúum um 7,3% á síðasta ári. Ljósm. úr safni/ Steina Matt.
Vesturland undir mannfjöldaaukningu á landsvísu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mannfjöldi á Íslandi 1. janúar 2022 var 376.248 og hafði íbúum fjölgað um 7.456 frá 1. janúar 2021, eða um 2,0%. Alls voru 193.095 karlar og 183.153 konur búsettar á landinu í upphafi ársins og fjölgaði körlum um 2,1% árið 2021 en konum um 1,9%.\r\n\r\nÍbúum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurlandi, eða um 3,3% á árinu en fjölgunin var 3,2% á Reykjanesi. Á Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Norðurlandi eystra var fjölgun um 1,8%, á Austurlandi 1,7% á Vestfjörðum 1,4% og minnst fjölgun var á Norðurlandi vestra einungis 0,07%.\r\n\r\nÍbúum á Vesturlandi fjölgaði í sex sveitarfélögum af tíu á árinu. Langmest fjölgun og raunar á landsvísu einnig var í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, eða um 19,7%. Einnig fjölgaði íbúum í Dalabyggð, Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð, Akranesi og Stykkishólmsbæ. Í Snæfellsbæ, Grundarfirði, Skorradal og Eyja- og Miklaholtshreppi fækkaði íbúum milli ára, langmest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 14,3%, sú mesta á landsvísu.",
"innerBlocks": []
}