
Sýni tekið. Ljósm. úr safni/ kgk.
Ríkið hættir niðurgreiðslu sýna vegna Covid
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Föstudaginn 1. apríl mun falla úr gildi reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna sýnatöku til greiningar á Covid-19. Reglugerðin tók fyrst gildi 16. september sl. og fól í sér að einkaaðilar sem önnuðust hraðpróf til greiningar á Covid-19, t.d. vegna hraðprófsviðburða eða útgáfu vottorða fyrir ferðamenn, gátu boðið þá þjónustu endurgjaldslaust. Frá og með 1. apríl verður einkennasýnatöku áfram sinnt hjá heilsugæslu og heilbrigðisstofnunum. Þar verður einnig í boði sýnataka fyrir ferðamenn sem þurfa vottorð vegna ferðalaga gegn gjaldi. Það má gera ráð fyrir því að einkaaðilar bjóði áfram upp á sýnatöku en sem fyrr segir verður niðurgreiðslum hins opinbera vegna sýnatöku hjá einkaaðilum hætt 1. apríl nk.",
"innerBlocks": []
}