Magnús Þór á förum frá Faxaflóahöfnum og í forstjórastól Rarik
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Magnús Þór Ásmundsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Faxaflóahafna frá árinu 2020, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá fyrirtækinu. Tilkynnt hefur verið að Magnús muni taka við starfi forstjóra Rarik ohf. frá 1. maí nk. Í tilkynningu óska Faxaflóahafnir Magnúsi Þór velfarnaðar á þeim vettvangi á sama tíma og honum eru þökkuð vel unnin störf hjá Faxaflóahöfnum. Gunnar Tryggvason, sviðsstjóri viðskiptasviðs Faxaflóahafna, er staðgengill forstjóra og mun hann tímabundið taka við starfinu frá 14. apríl og gegna því þar til það verður auglýst að nýju í vor.",
"innerBlocks": []
}
Magnús Þór á förum frá Faxaflóahöfnum og í forstjórastól Rarik - Skessuhorn