{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á „Úrvals graflaxi“ frá Eðalfiski ehf. vegna listeríu sem fannst í vörum með síðasta notkunardegi á tímabilinu 13.3.2022-11.4.2022. Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar í varúðarskyni af markaði og sent út fréttatilkynningu.\r\n\r\nInnköllunin á við eftirfarandi framleiðslulotur: Vöruheiti: Úrvals grafnar sneiðar, Úrvals grafinn lax (bitar), Úrvals grafinn lax (flök). Framleiðandi: Eðalfiskur ehf Borgarnesi. Lotunúmer: IB22038041046, IB22038041049 og IB22038042048. Vörurnar hafa verið í dreifingu í Krónunni, Fjarðarkaupum og í Kolaportinu.",
"innerBlocks": []
}