Fréttir

true

Borgarbyggð undirbýr komu flóttafólks frá Úkraínu

Borgarbyggð er nú í óða önn að undirbúa komu flóttafólks frá Úkraínu. Móttakan er unnin í samstarfi Borgarbyggðar, Rauða kross Íslands, Háskólans á Bifröst og fleiri aðila. Ríkið hefur þegar gert samning við Háskólann á Bifröst sem mun leggja til herbergi og íbúðir í verkefnið. Borgarbyggð mun halda utan um móttökuna í samstarfi við RKÍ…Lesa meira

true

Kosið um sameiningu tveggja sveitarfélaga á morgun

Á morgun, laugardaginn 26. mars, ganga íbúar í Helgafellssveit og Stykkishólmi til kosninga um sameiningu sveitarfélaganna. Kjörfundir í báðum sveitarfélögum munu standa yfir frá klukkan 10-18; í Grunnskólanum Stykkishólmi og Félagsheimilinu Skildi. Samstarfsnefnd hvetur íbúa til að kynna sér tillögu nefndarinnar vel og nýta kosningaréttinn.Lesa meira

true

Laun hækka vegna hagvaxtarauka

Forsendunefnd Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, sem starfar samkvæmt kjarasamningum, hefur hist og rætt hagvaxtarauka kjarasamninga. Landsframleiðsla jókst á mann um 2,53% á síðasta ári. Þetta hefur þá þýðingu að hagvaxtarauki kjarasamninga hefur virkjast í fjórða þrepi. Forsendunefndin hefur ákveðið að hagvaxtaraukinn komi til greiðslu 1. maí líkt og kveðið er á um í samningum…Lesa meira

true

Tæpum þremur milljörðum ráðstafað til ferðamannastaða

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, gerði fyrr í vikunni grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir um 2,8 milljarða króna framlagi til næstu þriggja ára. Í ár verður úthlutað rúmlega 914 milljónum króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða sem gerir kleift að halda áfram því…Lesa meira

true

Fermingarbörn söfnuðu á sjöunda hundrað þúsund fyrir vatnsbrunni

Föstudaginn 11. mars hófst sólarhrings dansmaraþon fermingarbarna í Borgarbyggð og fór það fram í Reykholtskirkju. Með dansmaraþoninu vildu krakkarnir safna fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu en vatnssöfnun fermingarbarna er eitt stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Söfnuðu krakkarnir áheitum hjá vinum og vandamönnum og söfnuðu alls 612.600 krónum.Lesa meira

true

Fermingar að byrja

Fyrstu fermingar ársins á Vesturlandi verða um helgina en á sunnudaginn á að ferma tvo hópa í Akraneskirkju, þann fyrri kl. 10:30 og seinni kl. 13:30. Þetta eru fyrstu fermingarnar síðan 2019 sem fara fram án samkomutakmarkana og munu fermingarbörnin vonandi njóta dagsins.Lesa meira

true

Tveir Skagamenn á leið á Heimsmeistaramót U21 í keilu

Tveir úr Keilufélagi Akraness voru valdir til að spila fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramóti U21 í keilu sem haldið verður í Svíþjóð dagana 19.-30. júní í sumar. Það eru þeir Ísak Birkir Sævarsson og Jóhann Ársæll Atlason en auk þeirra er lið drengja skipað Hinriki Óla Gunnarssyni úr Keiludeild ÍR og Mikael Aroni Vilhelmssyni frá…Lesa meira

true

Upplestrarkeppni samstarfsskóla á Vesturlandi

Á mánudaginn var lokahátíð upplestrarkeppni nemenda í 7. bekk samstarfsskóla á Vesturlandi haldin í Grunnskólanum í Borgarnesi. Þar voru níu nemendur úr Auðarskóla í Búðardal, Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskólanum í Borgarnesi og Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit sem lásu kafla úr bókinni Grísafjörður eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur og ljóð eftir Ragnheiði Lárusdóttur úr bókinni 1900 og eitthvað. Að…Lesa meira

true

Júlíana – hátíð sögu og bóka hefst í dag

Júlíana, hátíð sögu og bóka, hefst í Stykkishólmi í dag og stendur fram á laugardag. Þetta er viðamesta hátíðin frá upphafi en að henni standa að þessu sinni þær Ásdís Árnadóttir, Gréta Sigurðardóttir, Nanna Guðmundsdóttir og Sunna Guðný Högnadóttir. „Það verður rosalega skemmtileg dagskrá hjá okkur í ár, eins og alltaf,“ segir Gréta ánægð í…Lesa meira

true

Kátir krakkar á listagöngu

Nemendur í 3. bekk í Grundaskóla á Akranesi voru í listaverkagöngu í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns hitti á þau á leið í vinnuna. Þau voru svo sannarlega til í myndatöku og héldu svo ferð sinni áfram að skoða hin fjölmörgu listaverk bæjarins.Lesa meira