Stærsta einstaka verkefnið á Vesturlandi, sem nýtur stuðnings ríkisins, er göngustígagerð og önnur uppbygging fyrir ferðamenn í Ólafsdal, verkefni sem Minjavernd stendur að. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.
Tæpum þremur milljörðum ráðstafað til ferðamannastaða

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, gerði fyrr í vikunni grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir um 2,8 milljarða króna framlagi til næstu þriggja ára. Í ár verður úthlutað rúmlega 914 milljónum króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða sem gerir kleift að halda áfram því verkefni að byggja upp efnislega innviði á ferðamannastöðum, svo sem göngustíga, útsýnispalla, bílastæði og salerni. Aukin áhersla er á langtímaáætlanir í uppbyggingu staða en einnig á aukna miðlun og merkingar, ekki síst á stöðum þar sem samspil er á milli náttúru og menningarsögulegra minja.\r\n\r\n65 nýir staðir\r\n\r\nLandsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum er stefnumarkandi áætlun sem Alþingi samþykkti 2018. Verkefnaáætlanir eru gerðar til þriggja ára og eru uppfærðar á hverju ári. Ný verkefnaáætlun sem ráðherra kynnti nær til áranna 2022-2024. Alls er nú 151 verkefni á áætlun næstu þriggja ára á rúmlega 90 ferðamannastöðum, þar af 65 ný verkefni sem bætast við að þessu sinni. Meðal stórra verkefna má nefna uppbyggingu á Geysissvæðinu, byggingu útsýnispalls og göngustíga í Ásbyrgi, yfirbyggingu minja þjóðveldisbæjarins á Stöng í Þjórsárdal, skála með góðri heilsárs salernisaðstöðu í Vaglaskógi, vandaða göngustíga við Búrfellsgjá, áframhaldandi umbætur á aðgengi ofan við Gullfoss með steyptum stígum og frekari skref til bættrar aðstöðu við Jökulsárlón.\r\n\r\nTæp 5% á Vesturland\r\n\r\nÍ landsáætlun um uppbyggingu innviða frá 2022-2024 eru þrettán verkefni á Vesturlandi sem hljóta styrki, alls að upphæð 136,6 milljónir króna, en það jafngildir 4,86% af því fé sem ráðstafað verður næstu þrjú árin á landinu öllu. Þessi svæði á Vesturlandi eru öll á forræði Umhverfisstofnunar, Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og Minjaverndar.\r\n\r\nÞetta eru:\r\n\r\nArnarstapi / Hellnar. Deiliskipulag; endurbætur á göngustíg að Músagjá. 8.000.000 kr\r\n\r\nBúðir – friðland. Aðkomusvæði við Sjávargötu og Klettsgötu. 5.684.000 kr.\r\n\r\nEldborg í Hnappadal. Bílastæði fyrir gesti sem fara á Eldborg; göngubrú frá bílastæði að göngustíg; skilti við upphaf gönguleiðar. 22.800.000 kr.\r\n\r\nGrábrók. Malbikun bílastæðis. 3.500.000 kr.\r\n\r\nÓlafsdalur í Gilsfirði. Minjavernd hf. Göngustígar og önnur uppbygging fyrir ferðamenn á svæðinu 46.076.000 kr.\r\n\r\nSurtshellir (Vígishellir, afhellir) Minjastofnun Íslands. Tvö skilti um menningarminjar við bílastæði. 1.640.000 kr.\r\n\r\nÞjóðgarðurinn Snæfellsjökull. Frumgreining á uppbyggðum hjóla- og göngustíg. 2.005.000 kr.\r\n\r\nÞS / Gufuskálavör - Gufuskálar Endurgerð og varðveisla minja um sjósókn; fræðsluskilti. 4.804.843 kr.\r\n\r\nÞS / Malarrif. Viðburða- og áningarpallur við gestastofu. 6.507.500 kr.\r\n\r\nÞS / Skarðsvík. Fræðsluskilti. 1.688.000 kr.\r\n\r\nÞS / Öndverðarnes. Bílastæði; minjaheildarsvæði í samráði við Minjastofnun Vesturland. 19.154.200 kr.\r\n\r\nÞS Jökulháls. Skilti og merkingar. 2.260.000 kr.\r\n\r\nÞS Svalþúfa. Stækkun og úrbætur á bílastæði; göngustígar, tengingar og landmótun. 12.560.000 kr.",
"innerBlocks": []