Landað úr Sigurborgu SH í Grundarfirði. Ljósm. úr safni/tfk.

Laun hækka vegna hagvaxtarauka

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Forsendunefnd Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, sem starfar samkvæmt kjarasamningum, hefur hist og rætt hagvaxtarauka kjarasamninga. Landsframleiðsla jókst á mann um 2,53% á síðasta ári. Þetta hefur þá þýðingu að hagvaxtarauki kjarasamninga hefur virkjast í fjórða þrepi. Forsendunefndin hefur ákveðið að hagvaxtaraukinn komi til greiðslu 1. maí líkt og kveðið er á um í samningum og gildir því fyrir laun í apríl. Launataxtar munu hækka um 10.500 kr. og almenn laun um 7.875 kr. frá 1. apríl og koma til greiðslu 1. maí.",
  "innerBlocks": []
}
Laun hækka vegna hagvaxtarauka - Skessuhorn