Bifröst. Ljósm. úr safni/ James Einar Becker

Borgarbyggð undirbýr komu flóttafólks frá Úkraínu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Borgarbyggð er nú í óða önn að undirbúa komu flóttafólks frá Úkraínu. Móttakan er unnin í samstarfi Borgarbyggðar, Rauða kross Íslands, Háskólans á Bifröst og fleiri aðila. Ríkið hefur þegar gert samning við Háskólann á Bifröst sem mun leggja til herbergi og íbúðir í verkefnið. Borgarbyggð mun halda utan um móttökuna í samstarfi við RKÍ og sjálfboðaliða, meðal annars tryggja samgöngur, tómstundir fyrir börn og fullorðna, sálrænan stuðning og aðra þjónustu. Um er að ræða skammtímaúrræði sem felur í sér að flóttafólkið mun dvelja á Bifröst í allt að tólf vikur á meðan unnið er að því að finna þeim varanleg búsetuúrræði. Frá þessu segir á vef Borgarbyggðar.\r\n\r\nGengið hefur verið frá ráðningu Heiðrúnar Helgu Bjarnadóttur í tímabundið starf sem verkefnastjóra, og mun hún annast utanumhald verkefnisins ásamt þverfaglegu teymi fólks. Einnig hefur verið auglýst eftir félagsráðgjafa í verkefnið.\r\n\r\nÞá segir einnig að ljóst sé að það verði þörf á ýmissi aðstoð íbúa en fljótlega muni liggja fyrir hvert hægt verði að snúa sér til að bjóða fram aðstoð og hvaða aðstoðar sé þörf fyrir. „Við skulum taka vel á móti gestum okkar með hvaða hætti sem okkur er mögulegt, veitum því stuðning og hlýju á þessum erfiðum og flóknum tímum.“ segir að endingu í tilkynningunni.",
  "innerBlocks": []
}
Borgarbyggð undirbýr komu flóttafólks frá Úkraínu - Skessuhorn