Frá verðlaunaafhendingu í ljóðasamkeppni Júlíönu hátíðar í fyrra. F.v. Sigþrúður Silja Gunnarsdóttir, formaður dómnefndar, Ægir Þór Jahnke sem hlaut 1. verðlaun í ljóðasamkeppninni, Birna Hjaltadóttir sem hlaut 2. verðlaun og Sigrún Björnsdóttir, sem hlaut 3. verðlaun. Ljósm. úr safni/ Anna Melsteð.

Júlíana – hátíð sögu og bóka hefst í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Júlíana, hátíð sögu og bóka, hefst í Stykkishólmi í dag og stendur fram á laugardag. Þetta er viðamesta hátíðin frá upphafi en að henni standa að þessu sinni þær Ásdís Árnadóttir, Gréta Sigurðardóttir, Nanna Guðmundsdóttir og Sunna Guðný Högnadóttir. „Það verður rosalega skemmtileg dagskrá hjá okkur í ár, eins og alltaf,“ segir Gréta ánægð í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nHátíðin verður formlega sett í kirkjunni í kvöld kl. 20:00 þar sem Litla lúðrasveitin mun leika nokkur lög og nemendur kynna það sem þeir hafa verið að gera í samstarfi grunnskólans og Júlíönu hátíðar veturinn 2021. Hólmari ársins verður heiðraður fyrir framlag til menningarmála auk þess sem verðlaun verða afhent í smásagnasamkeppni. „Við höfum alltaf lagt mikið upp úr samstarfi við grunnskólann og ákváðum að auka samstarfið í ár og bjóða öllum nemendum frá 5.-10. bekk að taka þátt, en við höfum áður bara boðið þremur bekkjum í einu,“ segir Gréta. Gunnar Theodór Eggertsson rithöfundur kom og vann með krökkunum að skapandi skrifum fyrir hátíðina. Var áhersla lögð á þjóðsögur eða Íslendingasögurnar. Afrakstur samstarfsins verður kynntur í Amtsbókasafninu á morgun kl. 11:00. Þá verða fjölbreyttir og skemmtilegir viðburðir í boði fram á laugardag en nánari upplýsingar má finna á <a href=\"https://www.facebook.com/julianahatid\">Facebook síðu  Júlíönu-hátíð sögu og bóka.</a>",
  "innerBlocks": []
}
Júlíana - hátíð sögu og bóka hefst í dag - Skessuhorn