Níu nemendur í 7. bekk við Auðarskóla í Búðardal, Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskólanum í Borgarnesi og Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit tóku þátt í keppninni. Ljósm. Pétur Davíðsson

Upplestrarkeppni samstarfsskóla á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á mánudaginn var lokahátíð upplestrarkeppni nemenda í 7. bekk samstarfsskóla á Vesturlandi haldin í Grunnskólanum í Borgarnesi. Þar voru níu nemendur úr Auðarskóla í Búðardal, Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskólanum í Borgarnesi og Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit sem lásu kafla úr bókinni Grísafjörður eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur og ljóð eftir Ragnheiði Lárusdóttur úr bókinni 1900 og eitthvað. Að auki lásu keppendur svo ljóð að eigin vali.\r\n\r\nÁgúst Davíð Steinarsson, nemandi í 10. bekk í Grunnskólanum í Borgarnesi, var með tónlistaratriði þar sem hann flutti m.a. frumsamið verk. Dómnefnd skipuðu Kristín Björk Guðmundsdóttir fyrrum skólastjóri í Laugargerðisskóla, Sævar Jónsson bókavörður og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir eigandi Landnámssetursins.\r\n\r\nAllir þátttakendur stóðu sig með stakri prýði og erfitt reyndist að velja sigurvegara. Að lokum fór það svo að Erla Ýr Pétursdóttir frá Grunnskóla Borgarfjarðar hreppti fyrsta sætið. Í öðru sæti varð Viktor Bjarni Arnarsson úr Auðarskóla og Þóra Kolbrún Ólafsdóttir úr Grunnskólanum í Borgarnesi varð í þriðja sæti.",
  "innerBlocks": []
}
Upplestrarkeppni samstarfsskóla á Vesturlandi - Skessuhorn