Þessir fengu heiðursmerki KSÍ: Frá vinstri, Jónas, Valgeir, Ægir, Steinar, Guðmundur, Sævar og Halldór. Ljósm. Skessuhorn/ vaks

Sjö fengu heiðursmerki KSÍ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Árið 2020 fagnaði Knattspyrnudómarafélag Akraness 50 ára afmæli sínu en KDA, eins og það þekkist í dag, hefur starfað sleitulaust frá stofnun þess til dagsins í dag og er elsta starfandi knattspyrnudómarafélag landsins. Það voru þeir Guðjón Finnbogason og Friðjón Eðvarðsson ásamt fleiri Skagamönnum sem stofnuðu félagið árið 1970. Í gegnum tíðina hefur KDA átt fjölmarga dómara sem starfa og hafa starfað á efsta stigi knattspyrnunnar á Íslandi. Sá fyrsti var Guðjón Finnbogason og fylgdu margir fast á eftir honum eins og Sæmundur Víglundsson, Sævar Jónsson, Valgeir Valgeirsson og Ívar Orri Kristjánsson. Núverandi félagsmenn eru um 20 og starfa þeir í yngri flokkum á Akranesi og einnig dæma flestir þeirra í deildakeppnum KSÍ.\r\n\r\nSíðastliðið laugardagskvöld var loksins hægt að halda upp á 50 ára afmælið og fór það fram í Salnum að Jaðarsbökkum. Þar fengu nokkrir félagsmenn KDA afhent heiðursmerki KSÍ úr hendi formanns KSÍ, Vöndu Sigurgeirsdóttur. Þeir sem fengu Heiðursmerki KSÍ úr silfri voru eftirtaldir: Guðmundur Valgeirsson, Jónas Geirsson, Steinar Berg Sævarsson, Sævar Jónsson, Valgeir Valgeirsson og Ægir Magnússon. Þá fékk Halldór Breiðfjörð Jóhannsson Heiðursmerki KSÍ úr gulli.\r\n\r\nSævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri hélt ræðu í afmælinu og sagði meðal annars að hlutverk sjálfboðaliða í hreyfingunni væri gríðarlega mikilvægt og ættu þeir hrós skilið fyrir það hvað þeir hafa lagt á sig því það væri fyrst og fremst ástríða að leggja þetta á sig fyrir félagið og íþróttina. „Ég er stoltur af ykkar starfi og vil koma því á framfæri. Til hamingju með ykkur, til hamingju að hafa fengið þessa viðurkenningu frá KSÍ, þið eigið hana svo sannarlega skilið. Til hamingju með þessa vináttu sem ég finn líka og þið hafið sagt mér frá og er gríðarlega mikilvæg í ykkar hópi sem þið eigið að halda í út lífsleiðina, til hamingju með ykkur.“",
  "innerBlocks": []
}