Nýi leikskólinn sem er í byggingu við Asparskóga. Ljósm. vaks

Börn fædd út júlí 2021 tryggð leikskólapláss á Akranesi í haust

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á þriðjudaginn var fundur hjá skóla- og frístundaráði Akraneskaupstaðar. Í fundargerð kemur fram að undanfarin fjögur ár hafi ráðið lagt áherslu á að bæta aðstæður barna og fjölskyldna þeirra með tilliti til daggæslumála. Ráðist hafi verið í byggingu nýs glæsilegs sex deilda leikskóla við Asparskóga sem verður tekinn í notkun í haust þegar leikskólinn Garðasel flytur starfsemi sína.\r\n\r\nMeð innkomu nýs leikskóla skapast tækifæri til þess að stórbæta vinnuaðstæður bæði barna og starfsmanna á leikskólum bæjarins. Nú í haust býðst börnum sem fædd eru frá áramótum og út júlímánuð 2021 leikskólapláss. „Yngstu börnin sem byrja á leikskólum Akraneskaupstaðar í haust verða því 13 mánaða. Ef frekari tafir verða á byggingu leikskólans við Asparskóga er búið að tryggja leikskólastarfinu annað hentugt húsnæði þar til leikskólinn verður tekinn í notkun,“ segir í fundargerð.",
  "innerBlocks": []
}
Börn fædd út júlí 2021 tryggð leikskólapláss á Akranesi í haust - Skessuhorn