Melló frumsýnir Útfjör á morgun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Leiklistaklúbburinn Melló í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi frumsýnir söngleikinn Útfjör eða Fun Home á morgun, fimmtudaginn 24. mars. Söngleikurinn er byggður á teiknimyndasögu Alison Bechdel um ævi hennar og var fyrsti söngleikurinn sem sýndur var á Broadway þar sem aðalpersónan er lesbía. Útfjör er vísun í eitt af störfum fjölskylduföðurins í verkinu sem rekur útfararstofu meðfram því að vera móðurmálskennari. Leikritið fjallar um æsku og námsár Alison Bechdel og byggir á samnefndri sjálfsævisögu sem kom út í myndasöguformi árið 2006. Þekktust er Alison líklega fyrir að vera höfundur hins fræga Bechdel prófs sem er í þremur liðum og lagt er fyrir kvikmyndir. Ef myndin stenst alla þætti prófsins er hún talin vera kvenréttindasinnuð. Söngleikurinn var frumsýndur í Bandaríkjunum árið 2013 og fékk hin eftirsóknarverðu Tony verðlaun fyrir bestu tónlist, besta handrit og besta söngleikinn árið 2015.\r\n\r\nBlaðamaður Skessuhorns kíkti í Bíóhöllina á Akranesi á laugardaginn, skömmu áður en æfing hófst og náði leikstjóranum Gunnari Birni Guðmundssyni í stutt spjall. Gunnar Björn hefur verið að leikstýra hjá leikfélögum út um allt land frá því á níunda áratugnum og er þetta 35. leiksýningin sem hann færir á fjalirnar. Hann er einnig kvikmyndagerðarmaður og hefur gert þrjár bíómyndir í fullri lengd: Astrópíu (2007), Gauragang (2010) og Ömmu Hófí (2020). Einnig leikstýrði hann fjórum áramótaskaupum á árunum 2009 til 2012.\r\n\r\nÆfingar hófust fyrir áramót og átti að frumsýna 23. janúar. En vegna samkomutakmarkana var ákveðið að fresta sýningunni þar til nú á fimmtudaginn og önnur sýning verður svo sunnudaginn 27. mars. En hvernig hafa æfingarnar gengið? „Mjög vel, þetta er mjög sterkur og flottur hópur og stykkið er krefjandi. Þetta er mjög skemmtileg sýning með þykkum og alvarlegum tón en fjallar um alvöru mál og er sannsöguleg sýning. Fyrst þegar við lásum söguna og þegar við náðum að renna í heild þá hreyfði hún mikið við okkur. Þegar við fórum að fá áhorfendur þá áttuðum við okkur á því að þetta væri mjög góð sýning.“\r\n\r\nEn er ekki krefjandi að þurfa að velja leikara sem þurfa að geta leikið og sungið? „Það er það vissulega en það hefur ekki verið vandamál hér. Þetta er fjórða leikritið sem ég set upp hér með Fjölbraut og við höfum áður verið í stórum og miklum söngleikjum. Við settum upp Rock Of Ages fyrir nokkrum árum sem var geggjaður söngleikur. Með allt á hreinu var á undan því og Dýrin í Hálsaskógi náðum við ekki að sýna því miður, því var frestað og svo aftur. Það er stórkostlegt að geta loksins frumsýnt því við æfðum samtals í tólf vikur Dýrin í Hálsaskógi án þess að geta sýnt.“\r\n\r\nHópurinn sem kemur að sýningunni er tæplega 30 manns og segir Gunnar að mikill spenningur sé í hópnum. „Mikil spenna og stemning því nú er þetta raunverulega að gerast og ekkert sem stoppar okkur í því held ég.“\r\n\r\n<em>Almenn miðasala á sýninguna er á <a href=\"http://tix.is\">tix.is</a></em>",
  "innerBlocks": []
}
Melló frumsýnir Útfjör á morgun - Skessuhorn