Fréttir

true

Modestas ekki enn fundinn

Enn er leitað að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni sem lögreglan á Vesturlandi lýsti eftir á mánudaginn. Síðast er vitað um ferðir Modestas í Borgarnesi laugardaginn 7. janúar. Engar nýjar upplýsingar hafa komið fram og ekkert kom út úr upptökum sem skoðaðar voru í gær úr öryggismyndavélum verslana í Borgarnesi þar sem möguleiki var á…Lesa meira

true

Standa við fyrri ákvörðun sína um sveitarfélagamörk

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tók á fundi sínum í gær fyrir beiðni Akraneskaupstaðar um að endurskoðuð yrði fyrri ákvörðun um að hafna beiðni um færslu sveitarfélagamarka vegna 42 hektara landsskika af jörðinni Akrakoti í Hvalfjarðarsveit. Lagt var fram á fundinum erindi frá Akraneskaupstað í kjölfar synjunar Hvalfjarðarsveitar í desember á erindi um færslu sveitarfélagamarka, en í bréfinu…Lesa meira

true

„Ég hef áhuga á því að dafna hér og rækta það sem fyrir er með nýrri mold“

Rætt við söngkonuna og kórstjórann Hólmfríði Friðjónsdóttur Hólmfríður Friðjónsdóttir, eða Fríða eins og hún er oft kölluð, fluttist búferlum frá Stykkishólmi í Reykholt í Borgarfirði þegar henni bauðst staða kórstjóra Freyjukórsins árið 2019. Hólmfríður segir sig aldrei hrædda við að segja já og er dugleg að taka stökkið þegar ný tækifæri bjóðast. Hún hefur mikla…Lesa meira

true

Gríslingamót í badminton

Á sunnudaginn hélt Badmintonfélag Akraness hið árlega Gríslingamót félagsins og fór það fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Alls mættu til leiks um 40 keppendur á aldrinum sjö til tíu ára og auk keppenda frá ÍA tóku þátt krakkar frá TBR, Badmintonfélagi Hafnarfjarðar og Aftureldingu. Öllum keppendum var skipt í átta lið þvert á félög, spiluð…Lesa meira

true

Framkvæmdum við Suðurgötu á að vera lokið um mitt ár 2023

Í tilkynningu í byrjun júlí frá Veitum varðandi framkvæmdir við Suðurgötu á Akranesi kom fram að þegar framkvæmdir hófust í janúar á síðasta ári leit út fyrir að um frekar einfalt verkefni væri að ræða, tengja átti nýjar byggingarlóðir inn á núverandi veitukerfi auk þess að leggja nýjan háspennustreng að væntanlegri spennustöð á Sementsreit. „Þegar…Lesa meira

true

Snæfellsnesið er kennslustofa

Rætt við Jón Jóel Einarsson, eiganda Go West á Arnarstapa Hjónin Þuríður Maggý Magnúsdóttir og Jón Jóel Einarsson eiga og reka fyrirtækið Út og vestur, betur þekkt sem Go West. Það er ferðaþjónustufyrirtæki, staðsett á Arnarstapa á Snæfellsnesi, sem gerir út á vistvæna ferðaþjónustu (e. eco tourism). Fimmtán ár eru síðan fyrirtækið hóf starfsemi og…Lesa meira

true

Frostið komið niður fyrir 70 sentimetra

Frá því viku af desember hefur verið nánast stöðugt frost um vestanvert landið og mælst allt að 25 gráðum t.d. í uppsveitum Borgarfjarðar suma daga. Í fyrstu fraus á auða jörð og því náði klakinn víða að hlaupa langt niður. Á meðfylgjandi mynd eru starfsmenn Veitna að skipta um bút í neysluvatnslögn að einu hesthúsanna…Lesa meira

true

„Félagsmenn njóta ætíð góðs af jákvæðri rekstrarafkomu“

Verkalýðsfélag Akraness birti nýlega á heimasíðu sinni frétt þar sem fram kemur að félagið búi yfir öflugum sjúkrasjóði þar sem félagsmönnum er boðið upp á margvíslega styrki úr sjóðnum. Á árinu 2022 greiddi sjúkrasjóðurinn um 100 milljónir í formi sjúkradagpeninga og styrkja til félagsmanna en tæplega 1400 félagsmenn notfærðu sér þá styrki sem VLFA býður…Lesa meira

true

Ferðaþjónustan að komast á fullt skrið

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 1,7 milljón árið 2022 eða um einni milljón fleiri en árið 2021. Þetta er niðurstaða talningar Ferðamálastofu og Isavia. Aukningin milli ára nemur 146%. Í kjölfarið á afléttingu ferðatakmarkana í febrúar 2022 tók ferðamönnum að fjölga á ný en um 73% brottfara árið 2022 voru á…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í VÍS bikarnum eftir tap á móti Haukum

Fyrstu deildar lið Snæfells og úrvalsdeildarlið Hauka áttust við í undanúrslitum VÍS bikarsins í körfuknattleik í gær og fór viðureignin fram í Laugardalshöll. Leikurinn byrjaði af miklum krafti og liðin skiptust á að ná forskoti. Þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta í stöðunni 16:16 skelltu Haukakonur í lás, spiluðu hörkuvörn og skoruðu…Lesa meira