Fréttir

true

Grundaskóli safnaði yfir milljón króna fyrir Malaví

Fimmtudaginn 24. nóvember síðastliðinn var góðgerðardagur í Grundaskóla á Akranesi til styrktar hjálparstarfi í Malaví. Undanfarnar vikur höfðu nemendur og starfsfólk skólans undirbúið markaðinn en þar var til sölu fjölbreyttur varningur. Fullt var út úr dyrum þennan dag og hægt var að kaupa handverk úr leir og textíl, skreyttar krukkur, kökudeig, kókóskúlur, bækur og margt…Lesa meira

true

Bríet lækkar leiguna um tæpan þriðjung í desember

Þá verður mánaðarleg leiga einnig lækkuð um 4% frá og með áramótum Leigufélagið Bríet hyggst gefa leigjendum sínum 30% afslátt af leigu nú í desembermánuði. Leigutökum var tilkynnt þetta bréfleiðis í morgun og ættu þeir að sjá lægri upphæðir en vanalega á greiðsluseðlum í heimabankanum sínum. Þá kemur jafnframt fram í bréfinu að félagið hyggist…Lesa meira

true

Fyrirhuguð lagning Holtavörðulínu 1 kynnt landeigendum

Landsnet hefur boðað ótilgreindan stóran hóp landeigenda í Borgarfirði á upplýsingafund mánudaginn 5. desember næstkomandi kl. 20 á Hótel Hamri í Borgarnesi. Boðað fundarefni er staða undirbúnings fyrir lagningu Holtavörðuheiðarlínu 1, en ráðgert er að hún verði 90 km loftlína milli Klafastaða í Hvalfirði og að Hrútatungu fyrir botni Hrútafjarðar. Lagnaleiðin er því að hluta…Lesa meira

true

Blómasetrið – Kaffi Kyrrð tíu ára

Á morgun, fimmtudaginn 1. desember, eru tíu ár síðan Blómasetrið – Kaffi Kyrrð var opnað við Skúlagötu 13 í Borgarnesi. „Þessi tíu ár hafa verið ævintýri líkust,“ segir Svava Víglundsdóttir eigandi Blómasetursins í samtali við Skessuhorn. „Við erum sérstaklega þakklát fyrir okkar yndislegu viðskiptavini yfir árin. Þetta eru viðskiptavinir sem koma aftur og aftur til…Lesa meira

true

Fullveldishátíð Reykhólaskóla

Fullveldishátíð Reykhólaskóla verður haldin á morgun, fimmtudaginn 1. desember. Húsið opnar klukkan 16.30, dagskrá hefst klukkan 17 og stendur til klukkan 19. Leikrit og söngatriði verða á boðstólum, kaffihlaðborð að hætti foreldrafélagsins og leikir og sprell. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.Lesa meira

true

Fullveldishátíð Heiðarskóla á morgun

Fullveldishátíð Heiðarskóla i Hvalfjarðarsveit verður haldin fimmtudaginn 1. desember og hefst sýningin stundvíslega klukkan 17.15. Nemendur í 1. – 2. bekk ásamt elstu börnunum í Skýjaborg flytja söngatriði og þá sýna nemendur í 8. -10. bekk leikþáttinn Jólagrín. Boðið verður upp á vöfflur, heitt súkkulaði, kaffi og sjoppan verður opin. Miðaverð er kr. 1500 fyrir…Lesa meira

true

Jólatónleikar Hljómlistarfjélags Borgarfjarðar

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar stendur fyrir árlegum jólatónleikum félagsins sjötta árið í röð. Tvennir tónleikar verða í Hjálmakletti í Borgarnesi, báðir föstudaginn 11. desember, og hefjast þeir klukkan 17 og 20. Aðalgestir félagsins í ár eru Systur sem fóru til Ítalíu til keppni í Eurovison fyrir hönd Íslendinga síðastliðið vor. Þá verða fleiri góðir gestir og loks…Lesa meira

true

Lögreglumaður varð fyrir árás

Aðfararnótt laugardags var tilkynnt um stympingar fyrir utan Útgerðina bar við Stillholt á Akranesi. Lögregla kom á staðinn og hafði afskipti af slagsmálunum sem lauk með því að sparkað var í andlit og líkama lögreglumanns sem slasaðist við það. Árásarmaðurinn var handtekinn og á von á kæru.Lesa meira

true

Tímamót fyrir bifreiðaeigendur og kaupendur bifreiða

Persónuvernd hefur úrskurðað að eigendur bifreiða eiga rétt á að fá viðgerðar- og þjónustusögu bílsins afhenta rafrænt. Þannig má kalla fram allar upplýsingar um viðgerðar- og þjónustusögu bílsins á einum stað. Nýtt fyrirtæki rekur vefsíðuna thjonustubokin.is og býður það upp á þjónustu fyrir bíleigendur og -kaupendur. „Þjónustubókin er ný rafræn lausn sem aflar upplýsinga um…Lesa meira

true

Jóhanna Marín ráðin forstöðumaður hjá Brákarhlíð

Jóhanna Marín Björnsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður hjúkrunarsviðs dvalar- og hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi. Þrjár umsóknir bárust um starfið og tekur Jóhanna Marín við því 1. janúar nk. Þetta kemur fram á FB síðu Brákarhlíðar. Jóhanna Marín er 30 ára að aldri. Hún er stúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar, lauk prófi í íþrótta- og heilsufræði frá…Lesa meira