Blómasetrið – Kaffi Kyrrð tíu ára

Á morgun, fimmtudaginn 1. desember, eru tíu ár síðan Blómasetrið – Kaffi Kyrrð var opnað við Skúlagötu 13 í Borgarnesi. „Þessi tíu ár hafa verið ævintýri líkust,“ segir Svava Víglundsdóttir eigandi Blómasetursins í samtali við Skessuhorn. „Við erum sérstaklega þakklát fyrir okkar yndislegu viðskiptavini yfir árin. Þetta eru viðskiptavinir sem koma aftur og aftur til okkar og okkur þykir vænt um hverja einustu heimsókn,“ bætir hún við.

Blómasetrið – Kaffi Kyrrð tíu ára - Skessuhorn