Fréttir

true

Skógræktarfélag Akraness 80 ára

Miðvikudaginn 18. nóvember 1942 var Skógræktarfélag Akraness stofnað og fagnar því 80 ára starfsafmæli á þessu ári. Stofnfélagar voru meðal annarra Arnljótur Guðmundsson bæjarstjóri, Svafa Þorleifsdóttir skólastjóri og Hálfdán Sveinsson kennari en á fundinn mættu um 30 manns. Í dag eru félagar rúmlega 100 talsins. Hægt er að skoða nánar sögu félagsins á FB síðu…Lesa meira

true

Verð á almennum bréfasendingum hækkar á nýju ári

Ný verðskrá Póstsins tekur gildi á nýju ári. Þar er þyngdarflokkum fækkað úr sex í þrjá. Verð á almennum bréfum hækka en verð á þyngri bréfum lækka. Verð á almennum bréfasendingum 0-50 gr. hækkar um 26%, fer úr 230 kr.- stk í 290 kr.- stk. Verð á sendingum bréfa 51-250 gr verður 330.- kr. stk.…Lesa meira

true

Gleðilega aðventu – hver syngur fyrstur?

Þriðja árið í röð hefur göngu sína jóladagatalið Skaginn syngur inn jólin en það verkefni byrjaði fyrir jólin 2020 þegar Covid-19 geisaði um heim allan. Með árinu í ár eru 72 flytjendur sem hafa komið þar fram. Hver syngur fyrstur í ár? Dagatalið má finna hér.Lesa meira

true

Ný jóganámskeið hefjast á Akranesi á nýju ári

Þær Hulda Margrét Brynjarsdóttir og Marta Karen Kristjónsdóttir hafa tekið höndum saman og skipulagt jóganámskeið sem verða kennd á Akranesi á nýju ári. Þær eru báðar jógakennarar og segist Hulda hafa fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir jógatímum á Akranesi undanfarið en tímarnir verða kenndir í sal Sjúkraþjálfunar Akraness að Suðurgötu 126. Jóga er stór hluti…Lesa meira

true

Líf og fjör í myndmennt

Mikið líf er í hannyrðastofu Grunnskóla Grundarfjarðar þessa dagana enda nemendur iðnið við að skapa hin ýmsu listaverk. Dagný Rut Kjartansdóttir hóf störf við skólann í haust en hún er með meistaragráðu í kennsluréttindum með áherslu á myndmennt og sjónlistir. Dagný hefur haldið nemendum við efnið og liggja ófá verkin eftir afrakstur haustsins. „Nemendur á…Lesa meira

true

Skóflustunga fyrir nýju raðhúsi á Reykhólum

Síðasta þriðjudag var tekin fyrsta skóflustungan að fjögurra íbúða raðhúsi við Hellisbraut á Reykhólum. Það voru fulltrúar frá Leigufélaginu Bríeti ehf., sem verður eigandi hússins, Landsbyggðarhús ehf., sem byggir húsið og Reykhólahreppi, sem tóku skóflustunguna. Frá Bríeti ehf. var Guðmundur H. Jóhannsson verkefnastjóri eignaumsýslu, frá Landsbyggðarhúsum ehf. voru Indriði Þröstur Gunnlaugsson og Birgitta Sigursteinsdóttir eigendur,…Lesa meira

true

Grunngildi skátahreyfingarinnar vísa leiðina út í lífið

Í húsi Skátafélags Akraness eru á nokkurra vikna fresti haldnir Rekka- og Svannasveitarfundir en það eru skátafundir fyrir fullorðna skáta. Þeir eru iðulega vel sóttir og mæta þar milli 25 og 30 skátar en bróðurpartur þeirra eru konur. Blaðamaður kíkti á skátafund síðastliðið mánudagskvöld en það var svokallaður jólafundur sveitarinnar. Fundirnir byrja alltaf á samsöng…Lesa meira

true

Forgangsraða þurfi vegaframkvæmdum

Á fundi atvinnumálanefndar Dalabyggðar 28. nóvember sl. var rætt um vegaframkvæmdir í sveitarfélaginu. Sæmundur Kristjánsson, yfirverkstjóri á starfsstöð Vegagerðarinnar í Búðardal, kom á fundinn og fór yfir stöðuna. Fram kemur í fundargerð að „einungis níu sveitarfélög á landinu séu með lengra vegakerfi en Dalabyggð og ekkert þeirra er með jafn hátt hlutfall malarvega innan sinna…Lesa meira

true

Jólatónleikar kóranna á Snæfellsnesi

Karlakórinn Kári, Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju, Kór Ingjaldshólskirkju, Kirkjukór Ólafsvíkur og Kór Stykkishólmskirkju leiddu saman hesta sína á dögunum og hófu að æfa saman fyrir hátíðartónleika í öllum byggðakjörnunum á Snæfellsnesi. Fyrstu tónleikarnir voru í Grundarfjarðarkirkju mánudaginn 28. nóvember og var fullt út úr dyrum. Flutt voru falleg, hress og hátíðleg jólalög og komust gestir í sannkallað…Lesa meira

true

Geir lætur af störfum hjá Knattspyrnufélagi ÍA

Knattspyrnufélag ÍA og Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri félagsins hafa komist að samkomulagi um að Geir láti af störfum fyrir félagið á næstunni. Fram kemur í tilkynningu á FB síðu KFÍA að Geir muni verða félaginu innan handar næstu mánuði og þakkar stjórn félagsins honum kærlega fyrir vel unnin störf. Geir var framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands frá 1997-2007…Lesa meira