F.v. Marta Karen Kristjónsdóttir og Hulda Margrét Brynjarsdóttir. Með á myndinni er dóttir Huldu, Andrea Karen og í bakgrunni speglar sig Lukka Rún, dóttir Mörtu.

Ný jóganámskeið hefjast á Akranesi á nýju ári

Þær Hulda Margrét Brynjarsdóttir og Marta Karen Kristjónsdóttir hafa tekið höndum saman og skipulagt jóganámskeið sem verða kennd á Akranesi á nýju ári. Þær eru báðar jógakennarar og segist Hulda hafa fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir jógatímum á Akranesi undanfarið en tímarnir verða kenndir í sal Sjúkraþjálfunar Akraness að Suðurgötu 126. Jóga er stór hluti af lífi þeirra beggja og segja má að þær séu eins konar yin og yang í sinni jógaiðkun, þar sem Hulda hefur nýtt sér jóga til að leita inn á við, hægja á og finna styrkinn sem býr í mýktinni. Marta hefur hins vegar fundið sjálfa sig í kröftugu jógaflæði og er að sögn mikill eldur.

Ný jóganámskeið hefjast á Akranesi á nýju ári - Skessuhorn