2. október 2021
Skessuhorn - Fréttaveita Vesturlands

Fréttaveita Vesturlands

StyrkjaGerast áskrifandi
StyrkjaGerast áskrifandi
  • Fréttir
  • Veröld
  • Aðsendar greinar
  • Viðburðir
  • Nýjasta blaðið
Fréttir30.11.2022 12:04
Nýjar leiguíbúðir Bríet í Borgarnesi.

Bríet lækkar leiguna um tæpan þriðjung í desember

04.02.2023 11:57

Skallagrímur vann nauman sigur í nágrannaslagnum

Lesa meira

04.02.2023 08:01

Ljósmæður á Akranesi – Frumkvöðlar í fæðingahjálp

Lesa meira

03.02.2023 17:15

N4 komið í þrot

Lesa meira

03.02.2023 15:01

Bjóða Grímshús til leigu en með fyrirvörum

Lesa meira

03.02.2023 14:05

Jafningjahittingur krabbameinsgreindra í Snæfellsbæ

Lesa meira

03.02.2023 13:43

Erfið færð meðan lægð gengur yfir

Lesa meira

Hleð...
Skessuhorn - Fréttaveita Vesturlands
Skessuhorn ehf. kt. 560103-3870 Garðabraut 2a 300 Akranes Sími 433 5500 Ritstjórn: skessuhorn@skessuhorn.is
  • Senda inn efni
  • Nýburar
  • Auglýsingar
  • Starfsfólk
  • Fyrirtækið
  • Nýjasta blaðið
Facebook
Instagram
Twitter
LinkedIn

© 2017–2023 Allur réttur áskilinn Skessuhorn.

Þá verður mánaðarleg leiga einnig lækkuð um 4% frá og með áramótum

Leigufélagið Bríet hyggst gefa leigjendum sínum 30% afslátt af leigu nú í desembermánuði. Leigutökum var tilkynnt þetta bréfleiðis í morgun og ættu þeir að sjá lægri upphæðir en vanalega á greiðsluseðlum í heimabankanum sínum. Þá kemur jafnframt fram í bréfinu að félagið hyggist lækka leiguverð til allra leigutaka sinna varanlega um 4% frá og með 1. janúar næstkomandi.

Með þessu tekur Bríet á sig um helming af hækkun vísitölu neysluverðs það sem af er árinu en leigusamningar eru almennt vísitölubundnir sem leiðir til aukins húsnæðiskostnaðar leigjenda við hraða hækkun verðlags. Leigufélagið taldi brýnt að bregðast við því erfiða efnahagslega ástandi og þeirri miklu verðbólgu sem nú ríkir og koma til móts við leigutaka sína sem verða fyrir áhrifum.

Bríet er sjálfstætt leigufélag sem á og rekur um 250 fasteignir í 34 sveitarfélögum allt í kringum landið. Það er í eigu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og sveitarfélaganna Fjarðabyggðar, Fjallabyggðar og Reykhólahrepps.

Auðvelda hátíðirnar

„Við vildum leggja okkar lóð á vogarskálina vegna þeirra miklu vísitöluhækkana sem hafa orðið á leiguverði á þessu ári. Þar sem útgjöldin okkar hafa ekki hækkað eins mikið á þessu tímabili þá töldum við rými til að fara í lækkanir á leigu. Við vildum nýta það til að aðstoða sem mest fjölskyldurnar sem leigja heimili sín af okkur. Um þessar mundir ríkir mikil óvissa í efnahagsmálum og við vitum að það er ekki gott að fara inn í jólamánuðinn, með öllum þeim útgjöldum sem honum fylgir, með fjárhagsáhyggjur. Við vonum að desember-afslátturinn geri okkar fólki auðveldara að eiga gleðilega hátíð og að varanlega lækkunin, frá og með áramótunum, muni einnig létta því byrðarnar fram á við,“ segir Ásta Björg Pálmadóttir, stjórnarformaður Bríetar.