Fréttir

true

Ný tónlistarlög samþykkt í ríkisstjórn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra kynnti nýtt tónlistarfrumvarp fyrir ríkisstjórn sem samþykkti frumvarpið.  „Með frumvarpinu er lagt til að sett verði heildarlög um tónlist í fyrsta skipti en þar með er löggjöfin uppfærð og sameinuð fyrir allar listgreinar tónlistar. Frumvarpið útfærir einnig hlutverk og verkefni nýrrar Tónlistarmiðstöðvar sem á að taka til starfa eftir…Lesa meira

true

Fatagámur RKÍ nú við Íþróttahúsið

Í tilkynningu frá Vesturlandsdeild RKÍ kemur fram að fatagámur Rauða krossins í Borgarnesi hefur nú verið færður og er við Íþróttahúsið. „Við þökkum fyrir ykkar framlag til Rauða krossins og til umhverfismála um leið og við minnum á að einnig er hægt er að fara með fatnað í Gámastöðina á Sólbakka. Það er alveg bannað…Lesa meira

true

Opinn fundur í Stykkishólmi um samfélagsvegi

Opinn fundur verður haldinn í fundarsal á 3. hæð í Ráðhúsinu í Stykkishólmi á morgun, miðvikudaginn 30. nóvember kl. 18:00. Á fundinum kynnir Haraldur Benediktsson, alþingismaður, samfélagsvegi – nýja hugsun í vegagerð með sérstöku tilliti til Skógarstrandarvegar. Ásamt Haraldi taka einnig til máls Gísli Gíslason, fyrrverandi stjórnarformaður Spalar og Ómar Örn Tryggvason, forstöðumaður sértækra fjárfestinga…Lesa meira

true

Stefnir í dómsmál vegna kröfu um greiðslu fyrir sölumeðferð

Byggðarráð Dalabyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum á föstudaginn að hafna kröfu Frón fasteignamiðlunar, sem krafist hafði þess af sveitarfélaginu að fá meintar vangoldnar greiðslur og þóknanir vegna sölumeðferðar á jörðum og fasteignum á Laugum í Sælingsdal og Sælingsdalstungu. Krafa fasteignasölunnar hljóðar upp á 10,6 milljónir króna með vöxtum. Forsaga málsins er sú að árið…Lesa meira

true

Eitt tilboð barst Vegagerðinni í leigu á ferju

Eitt tilboð barst Vegagerðinni þegar auglýst var útboð ferju til leigu til siglinga á Breiðafirði í stað ferjunnar Baldurs. Útboðið var um leigu á skipi án áhafnar í fimm mánuði, frá 1. janúar 2023 til 31. maí 2023, með möguleika á að kaupa skipið. Tilboðið sem barst var frá Torghatten Nord AS í Noregi og…Lesa meira

true

Námskeið í brunaþéttingum

Iðan fræðasetur og Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar halda námskeið í brunaþéttingum föstudaginn 2. desember klukkan 13. Námskeiðið er haldið í húsnæði slökkviliðsins að Kalmansvöllum 2 á Akranesi. Námskeiðið er fyrir alla sem koma að byggingaframkvæmdum og þurfa að þétta milli brunahólfa. Markmið þess er að þátttakendur kunni skil á reglum um brunaþéttingar og efni sem…Lesa meira

true

Yngstu og elstu spilararnir á toppnum

Aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gærkvöldi í Logalandi. Þátttaka var með besta móti, spilað á níu borðum. Þátttakendur komu af Ströndum, Borgarfirði og Borgarnesi og frá Akranesi. Um fjögurra kvölda keppni var að ræða en besti árangur þriggja kvölda var lagður saman og fengust þá úrslit. Tvímenningsmeistarar 2022 urðu þeir Heiðar Árni Baldursson og Logi…Lesa meira

true

Tónlistarskóli Borgarfjarðar sýnir atriði úr Skilaboðaskjóðunni

Nú í byrjun desember sýnir Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar atriði úr ævintýrasöngleiknum Skilaboðaskjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson. Tónlistin er eftir Jóhann G. Jóhannsson. Í sýningunni koma 23 börn fram, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir leikstýrir, Theodóra Þorsteinsdóttir stýrir tónlistinni og Hanna Ágústa Olgeirsdóttir leikur með á píanó. Fram kemur í tilkynningu frá skólanum að búið sé að vera heilmikið…Lesa meira

true

Akranesdeild RKÍ blæs lífi í vinaverkefnið

Fræðsla og spjall miðvikudaginn 7. desember Akranesdeild Rauða kross Íslands hefur hug á að blása nýju lífi í vinaverkefnið sem hefur verið á Akranesi og nærsveitum um árabil en verkefnið féll niður í faraldrinum. Af því tilefni er nýjum og gömlum heimsóknavinum boðið til fræðslu og spjalls í húsnæði Rauða krossins að Kirkjubraut 12, miðvikudaginn…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu fyrir Sindra

Sindri og ÍA áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik síðasta föstudagskvöld og fór viðureignin fram á Höfn í Hornafirði. Ferðaþreytan virtist ekki vera mikið að hrjá Skagamenn í fyrsta leikhluta þó heimamenn væru alltaf aðeins skrefinu á undan. Um miðjan leikhlutann var Sindri sex stigum yfir, 17:11, og við lok hans var þetta…Lesa meira