Fréttir

true

Kanna sameiningu Bjargráðasjóðs og Náttúruhamfaratryggingar Íslands

Starfshópur um tryggingavernd bænda hefur skilað skýrslu til matvælaráðherra. Hópurinn var skipaður í fyrra, og var ætlað að greina stöðu tryggingaverndar bænda vegna óvæntra áfalla í búskap og gera tillögur að úrbótum. Í hópnum áttu sæti fulltrúar matvælaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, Náttúruhamfaratryggingar Íslands, Samtaka fjármálafyrirtækja f.h. tryggingafélaga, Bjargráðasjóðs og Bændasamtaka Íslands. Í skýrslunni eru lagðar…Lesa meira

true

Bleik slaufa til forvarna

Í Bleiku slaufunni í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að forvörnum gegn krabbameinum hjá konum, hvað hægt er að gera til að draga úr áhættu á að fá krabbamein. Hjá konum spila skimanir fyrir krabbameinum einna stærsta hlutverkið. „Við hvetjum konur til að bóka tíma þegar þær fá boð. Því fyrr sem krabbamein eða forstig þess…Lesa meira

true

Nemendur í MB læra á myndver og þrívíddarprentara

Menntaskóli Borgarfjarðar stendur framarlega á sviði nýjunga í kennslu en rýmið Kvika hefur nú verið tekið í notkun í skólanum. Kvika er kennslurými sem nota má til skapandi vinnu í öllum áföngum sem kenndir eru við skólann. Nemendur læra nú meðal annars á vel útbúið myndver, læra á vínyl- og leiserskurð ásamt þrívíddarprentun. Bragi Þór…Lesa meira

true

Starfsfólk LMÍ jákvætt fyrir sameiningu stofnana

Í októberhefti af Kvarðanum, rafrænu fréttabréfi Landmælinga Íslands, er sagt frá því að á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sé nú unnið að greiningu á samlegð stofnana ráðuneytisins og verkefna þeirra með það í huga að sameina stofnanir sem undir ráðuneytið heyra, sem í dag eru alls 13 að tölu samkvæmt heimasíðu ráðuneytisins. Þær eru:…Lesa meira

true

Framtíðar sundfólkið á Arena móti

Um liðna helgi fór fram Arena mót Sundfélagsins Ægis í Laugardalslaug. Kepptu þar átján sundmenn frá ÍA, tíu ára og eldri. Sundfólkið átti góða spretti og sjá mátti bætingar hjá mörgum síðan á Sprengimótinu fyrir um þremur vikum. Fimm sundmenn afrekuðu að bæta sig í öllum sínum greinum. Það voru þau Almar Sindri Danielsson Glad,…Lesa meira

true

Lækka að nýju dagpeninga fyrir fæði og gistingu í sólarhring

Ferðakostnaðarnefnd ríkisins hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:  Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring greiðast nú 34.500 krónur, fyrir gistingu í einn sólarhring 28.800 kr, fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag greiðast 13.600 krónur og fyrir fæði í hálfan…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Sindra

Skallagrímur tók á móti Sindra á föstudagskvöldið í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta en Skallagrímur tók smá kipp undir lok hans og var með sex stiga forystu, 22:16. Um rúman miðjan annan leikhluta komust gestirnir yfir í leiknum og…Lesa meira

true

ÍA með góðan útisigur á Þór Akureyri

Skagamenn gerðu sér góða ferð norður á föstudaginn þegar þeir mættu Þór í 1. deild karla í körfuknattleik og unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu, lokastaðan 74:77 fyrir ÍA. Þór byrjaði leikinn betur og skoraði fyrstu fjögur stigin en ÍA komust í 6:12 eftir rúman fimm mínútna leik. Skömmu síðar hrökk allt í baklás hjá…Lesa meira

true

Skagamenn í erfiðum málum eftir tap á móti Keflvíkingum

Keflavík og ÍA mættust í fyrstu umferð í úrslitakeppni Bestu deildar neðri hlutar í gær og fór leikurinn fram syðra. Skagamenn komust yfir á 18. mínútu leiksins þegar Benedikt V. Warén fékk boltann hægra megin, óð upp að vítateig Keflvíkinga og setti boltann með vinstri sem fór af varnarmanni og í netið, staðan 0-1 fyrir…Lesa meira

true

Forgjafarmót að Hamri

Pútthópurinn í Borgarbyggð æfir af krafti og hélt forgjafarmót að Hamri 22. september sl. Er það trúlega síðasta utanhússmótið á þessu ári, að sögn Ingimundar Ingimundarsonar. Í mótið mættu 12 konur og 13 karlar. Keppt var eftir forgjöf í ágúst. Guðrún Helga Andrésdóttir varð hlutskörpust í kvennaflokki án forgjafar með 66 högg. Önnur var Heba…Lesa meira