
Sigurvegarar á púttmótinu. Á myndina vantar Rannveigu Finnsdóttur og Björn Jóhannsson. Ljósm. gha
Forgjafarmót að Hamri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Pútthópurinn í Borgarbyggð æfir af krafti og hélt forgjafarmót að Hamri 22. september sl. Er það trúlega síðasta utanhússmótið á þessu ári, að sögn Ingimundar Ingimundarsonar. Í mótið mættu 12 konur og 13 karlar. Keppt var eftir forgjöf í ágúst.\r\n\r\nGuðrún Helga Andrésdóttir varð hlutskörpust í kvennaflokki án forgjafar með 66 högg. Önnur var Heba Magnúsdóttir með 67 högg og Ásdís Baldvinsdóttir þriðja einnig með 67 högg. Þóra Sigríður Einarsdóttir stóð uppi sem sigurgvegari með forgjöf, lék á 57 höggum. Önnur var Hugrún B. Þorkelsdóttir með 59 högg og þriðja Rannveig Finnsdóttir með 60 högg. Ingimundur Ingimundarson varð hlutskarpastur í karlaflokki án forgjafar á 62 höggum. Þórhallur Teitsson var annar á 65 höggum og Björn Jóhannsson þriðji á 67 höggum. Guðmundur Eyþórsson vann með forgjöf á 61 höggi. Annar varð Guðmundur Lind Egilsson á 64 höggum og Steinar Ragnarsson þriðji á 65 höggum. Nú vænta púttarar að októbermánuður verði hagstæður til útivistar svo æfingar geti haldið áfram utan dyra því inniaðstaðan í kjallara Menntaskólans er mjög þröng og óhentug.",
"innerBlocks": []
}