Lækka að nýju dagpeninga fyrir fæði og gistingu í sólarhring

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ferðakostnaðarnefnd ríkisins hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:  Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring greiðast nú 34.500 krónur, fyrir gistingu í einn sólarhring 28.800 kr, fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag greiðast 13.600 krónur og fyrir fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag 6.800 krónur. Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2022. Ferðakostnaðarnefnd birti síðast ákvörðun um dagpeninga í maí. Þá voru greiðslur fyrir gistingu og fæði í sólarhring hækkaðir um allt að þrjátíu prósent og voru 42.400 krónur. Sú hækkun var rökstudd með því að eftirspurn eftir gistingu hér á landi á sumrin er mikil. Dagpeningar aðeins fyrir gistingu, fæði fyrir heilan dag og hálfan dag héldust óbreyttir nú.\r\n\r\n„Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki til að útlagður kostnaður sé sem næst viðmiðunarfjárhæðum. Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi.“\r\n\r\n<em>ATH! Fréttin var leiðrétt og uppfærð kl. 16:51</em>",
  "innerBlocks": []
}
Lækka að nýju dagpeninga fyrir fæði og gistingu í sólarhring - Skessuhorn