
Bragi Þór Svavarsson, skólameistari MB, sýndi blaðamanni vel útbúið myndver sem skólinn vinnur nú í að koma upp. Ljósm. sþ
Nemendur í MB læra á myndver og þrívíddarprentara
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Menntaskóli Borgarfjarðar stendur framarlega á sviði nýjunga í kennslu en rýmið Kvika hefur nú verið tekið í notkun í skólanum. Kvika er kennslurými sem nota má til skapandi vinnu í öllum áföngum sem kenndir eru við skólann. Nemendur læra nú meðal annars á vel útbúið myndver, læra á vínyl- og leiserskurð ásamt þrívíddarprentun. Bragi Þór Svavarsson skólameistari segir kennara hvetja nemendur til að koma sjálfir með hugmyndir, en hann segir mikinn áhuga ríkja fyrir rýminu og þeim spennandi möguleikar sem opnast með því.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_56711\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-56711 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/Nemendur-i-MB-laera-a-myndver-og-thrividdarprentara_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Þrívíddarprentarar að verki en m.a. var nemandi í skólanum að prenta út varahlut á myndavélastand þegar blaðamaður leit við.[/caption]",
"innerBlocks": []
}