
Benedikt V. Warén skoraði fyrsta mark ÍA á móti Keflavík. Hér í leik gegn KR fyrr í sumar. Ljósm. Lárus Árni Wöhler.
Skagamenn í erfiðum málum eftir tap á móti Keflvíkingum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Keflavík og ÍA mættust í fyrstu umferð í úrslitakeppni Bestu deildar neðri hlutar í gær og fór leikurinn fram syðra. Skagamenn komust yfir á 18. mínútu leiksins þegar Benedikt V. Warén fékk boltann hægra megin, óð upp að vítateig Keflvíkinga og setti boltann með vinstri sem fór af varnarmanni og í netið, staðan 0-1 fyrir ÍA. Tíu mínútum síðar jafnaði Kian Williams metin fyrir heimamenn þegar Árni Marinó Einarsson missti af fyrirgjöf og fór boltinn beint fyrir fætur Kian sem lagði hann í netið. Á lokamínútu fyrri hálfleiks komst sóknarmaður Keflavíkur einn inn fyrir vörn Skagamanna, fór framhjá Árna Marinó sem braut á honum og víti dæmt. Patrik Johannesen skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnunni og staðan í hálfleik 2-1 fyrir Keflavík.\r\n\r\nSkagamenn jöfnuðu leikinn eftir tæpan tíu mínútna leik í þeim síðari þegar Johannes Björn Vall fékk boltann í teignum og átti ágætis skot sem markvörður Keflavíkur réði ekki við, staðan 2-2 og spenna komin í leikinn á ný. Það var síðan Joey Gibbs sem skoraði sigurmark leiksins fyrir Keflavík tíu mínútum síðar þegar hann skoraði úr aukaspyrnu og það urðu lokatölur leiksins, 3-2 fyrir Keflavík. Í uppbótartíma fékk Oliver Stefánsson leikmaður ÍA síðan sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir ljóta tæklingu sem þýðir að hann verður í leikbanni í næsta leik.\r\n\r\nÞetta tap þýðir að Skagamenn verða að vinna alla fjóra leikina sem eftir eru í mótinu og treysta á önnur hagstæð úrslit. Það er nánast ljóst að Keflavík og Fram eru sloppin við fall en ÍBV, Leiknir R., FH og ÍA verða í þeirri baráttu eitthvað áfram. Næsti leikur ÍA er gegn Fram næsta laugardag á Akranesvelli og hefst viðureignin klukkan 14.",
"innerBlocks": []
}