Fréttir

true

VG boðar til íbúafundar í Borgarbyggð um vindorkuver

Vindorkumálin eru mikið í deiglunni í Borgarbyggð þessi dægrin. Af því tilefni boðar Vinstri hreyfingin grænt framboð til opins fundar til að ræða vindorkumálin. Fundurinn fer fram í arinstofunni; á efstu hæð í Landnámssetrinu í Borgarnesi, þriðjudaginn 4. október og hefst klukkan 20:00. Á fundinn koma Bjarni Jónsson þingmaður Norðvesturkjördæmis, Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri…Lesa meira

true

Styrktartónleikar fyrir Minningarsjóð Heimis Klemenzsonar í Reykholtskirkju

Styrktartónleikar fyrir Minningarsjóð Heimis Klemenzsonar verða haldnir í Reykholtskirkju í Borgarfirði laugardaginn 8. október klukkan 15. Fyrsta og eina úthlutun sjóðsins fór fram í desember 2020 og voru það þær Anna Þórhildur Gunnarsdóttir píanóleikari, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir söngkona og Steinunn Þorvaldsdóttir söngkona sem hlutu þá styrk úr sjóðnum. Standa þær nú fyrir fyrirhuguðum styrktartónleikum en…Lesa meira

true

Glænýr fjallgönguáfangi í FVA

Fjölbrautaskóli Vesturlands er heilsueflandi framhaldsskóli sem leggur metnað í að bjóða nemendum upp á heilsueflandi viðburði, heilsueflandi umhverfi og holla næringu. Í takt við stefnu skólans hefur glænýr valáfangi í fjallgöngum og útivist staðið nemendum til boða á þessari haustönn. Meginmarkmið áfangans er að efla áhuga nemenda á útivist og náttúru landsins ásamt því að…Lesa meira

true

Enginn viðbragðsbíll frá slökkviliðinu lengur á Hvanneyri

Í gær hélt Slökkvilið Borgarbyggðar æfingu á tveimur starfsstöðvum sínum; í Borgarnesi og á Hvanneyri. Á síðarnefnda staðnum var æfing þar sem slöngum var rúllað út í nýjasta íbúðahverfinu, tengt við brunahana og byrjað að dæla. Að sögn slökkviliðsmanna var einkum tvennt sem stendur uppúr eftir þessa æfingu. Í fyrsta lagi tók einungis nokkrar mínútur…Lesa meira

true

Fyrsta nýja björgunarskipið – heimahöfn þess verður Vestmannaeyjar

Nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Björgunarfélags Vestmannaeyja er komið til landsins, en heimahöfn þess er Vestmannaeyjar. Skipinu var við komuna til hafnar í gær gefið nafnið Þór. Að loknu útboði á fyrstu þremur nýju björgunarskipunum Landsbjargar á miðju ári 2021 var ákveðið að ganga til samninga við KewaTec, finnskan skipasmið, sem hefur rúmlega 20 ára…Lesa meira

true

Sviðsettu Fokkerslys á Reykjavíkurflugvelli

Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar á suðvesturhorni landsins tóku í gær þátt í hópslysaæfingu Almannavarna og Isavia á Reykjavíkurflugvelli. Æfingar af þessu tagi eru haldnar á hverjum áætlunarflugvelli á fjögurra ára fresti með þátttöku allra viðbragðsaðila á hverju landssvæði fyrir sig. „Hópslys kalla á aukið viðbragð í almannavarnakerfinu því slíkir atburðir leggja meira álag á daglegt viðbragð…Lesa meira

true

„Flugið hefur alltaf heillað“

Rætt við Guðbjörgu Rós Guðnadóttur flugmann hjá Icelandair „Ég man eftir því í eitt sinn, þegar ég var að aka heim til mín í sveitina, að þá sá ég til flugvélar sem bar við himinn. Þótt ég hafi verið búin að velta því alvarlega fyrir mér að fara í flugnám þá heillaðist ég af þessari…Lesa meira

true

Snæfell með stórsigur á Breiðabliki b

Breiðablik b og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik á miðvikudaginn og fór leikurinn fram síðla kvölds í Smáranum í Kópavogi. Heimakonur byrjuðu betur og komust í 5-0 en það varð fljótlega ljóst hvort liðið myndi hafa sigur í leiknum. Eftir fimm mínútna leik var staðan orðin 6:13 Snæfelli í vil og…Lesa meira

true

Nýr Framkvæmdastjóri Gleipnis – nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastýra Gleipnis – nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi. Bjargey hefur viðamikla reynslu af verkefnastjórnun, viðburðarstjórnun og þverfaglegu starfi. Síðastliðin ár hefur hún haldið utan um alþjóðlegt framhaldsnám í umhverfis- og auðlindafræði og skipulagt fjölda viðburða við Háskóla Íslands en starfaði áður hjá ORF Líftækni. Bjargey er með BS gráðu…Lesa meira

true

Segir að gefa þurfi spilin upp á nýtt

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, ávarpaði Landsþing sambandsins sem haldið er í Hofi á Akureyri. Í ræðu sinni kvaðst hún vera full auðmýktar yfir því trausti sem henni var sýnt er hún var kjörin formaður sambandsins og hún hlakkar til þess að taka til starfa. Eitt brýnasta verkefni sveitarstjórna á komandi kjörtímabili eru…Lesa meira