Heiða Björg Hilmisdóttir formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga ávarpar landsþingið.

Segir að gefa þurfi spilin upp á nýtt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, ávarpaði Landsþing sambandsins sem haldið er í Hofi á Akureyri. Í ræðu sinni kvaðst hún vera full auðmýktar yfir því trausti sem henni var sýnt er hún var kjörin formaður sambandsins og hún hlakkar til þess að taka til starfa. Eitt brýnasta verkefni sveitarstjórna á komandi kjörtímabili eru tekjustofnar þeirra þar sem þeir standa ekki lengur undir þeim verkefnum sem sveitarfélögum ber að sinna en á sama tíma kalla íbúar i mörgum tilfellum eftir meiri þjónustu.\r\n\r\n„Vanfjármögnun í málaflokki fatlaðs fólks, hjúkrunarheimila og í málefnum barna með fjölþættan vanda er grafalvarleg og þannig er ekki hægt að halda áfram. Drög að skýrslu tekjustofnanefndar er komin í Samráðsgátt stjórnvalda. Þar má finna tillögur sambandsins og sveitarstjórnir þurfa að taka afstöðu til þeirra,“ sagði Heiða Björg. „Það er ljóst að það þarf einfaldlega að gefa upp á nýtt og það verður eitt helsta verkefni þessa kjörtímabils. Það er mikilvægt að samstarf ríkis og sveitarfélaga sé traust og með skýrum leikreglum, þarna þurfum við að bakka og ná betra samtali og ég er sannarlega tilbúin í það fyrir okkar hönd. Þessi endalausa umræða um hvað er á ábyrgð hvers og hver á að borga hvað er nauðsynleg en ef hún leiðir ekki til niðurstöðu - er hún niðurbrjótandi. Hamlar framförum sem við þurfum svo nauðsynlega á að halda,“ sagði Heiða Björg.\r\n\r\nNý stjórn var skipuð í Sambandi íslenskra sveitarfélaga á þinginu. Fulltrúi af Vesturlandi í henni er Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi (D) í Borgarbyggð.",
  "innerBlocks": []
}
Segir að gefa þurfi spilin upp á nýtt - Skessuhorn