
Frá heimsókn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku og loftslagsráðherra til LMÍ í júní síðastliðnum. Ljósm. Kvarðinn.
Starfsfólk LMÍ jákvætt fyrir sameiningu stofnana
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í októberhefti af <a href=\"https://www.lmi.is/static/files/kvardinn/2022/kvardinn_okt.pdf\">Kvarðanum, rafrænu fréttabréfi Landmælinga Íslands,</a> er sagt frá því að á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sé nú unnið að greiningu á samlegð stofnana ráðuneytisins og verkefna þeirra með það í huga að sameina stofnanir sem undir ráðuneytið heyra, sem í dag eru alls 13 að tölu samkvæmt heimasíðu ráðuneytisins. Þær eru: Íslenskar orkurannsóknir, Landmælingar Íslands, Minjastofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn, Orkustofnun, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Umhverfisstofnun, Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, Úrvinnslusjóður, Vatnajökulsþjóðgarður, Veðurstofa Íslands og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.\r\n\r\nÍ frétt Kvarðans segir að markmiðið með greiningu á samlegð stofnana sé að gera þær og stofnanakerfið burðugra, einfaldara og hagkvæmara en áður og betur í stakk búið til að takast á við flókin verkefni á næstu árum og áratugum. Af hálfu stjórnvalda er mikil áhersla lögð á að fyrirhugaðar breytingar styðji við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu, þ.e. að störfum á landsbyggðinni fjölgi með því að gera þau ekki staðbundin heldur án staðsetningar. Því er áfram gert ráð fyrir starfsstöð á Akranesi, segir í fréttinni.\r\n\r\nÍ viðtali við Gunnar H. Kristinsson, settan forstjóra Landmælinga Íslands, sem birtist í maí síðastliðnum í Skessuhorni kvaðst hann vera þess fullviss að starfsemi LMÍ gæti passað vel inn í starfsemi margra stofnana og myndi styrkja þær; „en við gætum líka tekið að okkur ýmis landupplýsingaverkefni sem nú er dreift víða um stofnanakerfið. Eitthvað þarf að minnsta kosti að gera því við erum að verða of fámenn stofnun til að uppfylla allar þær kröfur sem gerðar eru til stofnana í dag,“ sagði Gunnar í viðtalinu í maí. Hjá Landmælingum hafa verið um 25 starfsmenn.\r\n\r\nSamkvæmt könnun Maskínu þá er Starfsfólk Landmælinga Íslands mjög jákvætt gagnvart þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru, líkt og Gunnar, og sjá þeir mikil tækifæri í því að stækka skipulagseiningarnar og efla þannig styrk þeirra. Gert er ráð fyrir að niðurstaða greiningarvinnu verði ljós fyrir næstu áramót og í árslok 2023 verði stofnanir formlega sameinaðar og innleiðing breytinga hefjist. Stofnanirnar sem mögulega gætu verið sameinaðar við LMÍ eru ekki tilgreindar í frétt Kvarðans, en undir ráðuneytið heyra 13 stofnanir eins og fyrr segir.",
"innerBlocks": []
}