Bleik slaufa til forvarna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í Bleiku slaufunni í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að forvörnum gegn krabbameinum hjá konum, hvað hægt er að gera til að draga úr áhættu á að fá krabbamein. Hjá konum spila skimanir fyrir krabbameinum einna stærsta hlutverkið. „Við hvetjum konur til að bóka tíma þegar þær fá boð. Því fyrr sem krabbamein eða forstig þess greinist því betri eru horfurnar. Öll starfsemi Krabbameinsfélagsins byggir á söfnunarfé. Með kaupum á Bleiku slaufunni gerir almenningur og fyrirtækin í landinu Krabbameinsfélaginu kleift að vinna að markmiðum sínum; að fækka þeim sem greinast með krabbamein, fjölga þeim sem lifa af og bæta líf þeirra sem fá krabbamein og aðstandenda þeirra,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Bleika slaufan í ár er hönnuð af Helgu Friðriksdóttur og Skagamanninum Orra Finnbogasyni hjá Orrifinn Skartgripum.",
  "innerBlocks": []
}
Bleik slaufa til forvarna - Skessuhorn