Fréttir

true

Ísland framarlega yfir fá banaslys

Síðustu fjögur ár hefur Ísland verið í tíunda neðsta sæti á lista yfir fjölda látinna í umferðinni. Listinn er tekinn saman af CARE, sem rekur samevrópskan umferðarslysagagnagrunn. Við útreikninga á þeim lista er tekið mið af meðaltali látinna í umferðinni í hverju landi á fimm ára tímabili. Nú þegar nýr listi CARE kom út með…Lesa meira

true

Hyggja á byggingu nýs leikskála í Ölveri

Sumarbúðirnar Ölver eru staðsettar við rætur Hafnarfjalls og hafa verið starfræktar frá því um miðja síðustu öld. Þar er hver dagur nýtt ævintýri, sambland af ómissandi hefðum, nýjum leikjum og uppákomum. Í starfinu er unnið með gildi Biblíunnar, mikið sungið og boðið upp á hollan og góðan heimalagaðan mat. Nýlokið er vel heppnuðu sumri í…Lesa meira

true

Setjast við spilaborðið næsta mánudagskvöld

Félagar í Briddsfélagi Borgarfjarðar hafa ákveðið að hefja vetrarstarfið næstkomandi mánudag. „Mánudaginn 26. september byrjum við spilaveturinn í Logalandi. Spilaður verður léttur tvímenningi. Byrjum klukkan 20:00,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Byggðasafn Dalamanna lokað í hartnær þrjú ár

Fyrir tæpum tveimur árum hóf Dalabyggð viðræður við ríkið um að færa Byggðasafn sitt frá Laugum í Sælingsdal að Staðarfelli á Fellsströnd. Kristján Sturluson, þáverandi sveitarstjóri, sendi bréf til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, sem þá var, í febrúar 2021 þess efnis að húsnæði byggðasafnsins á Laugum væri úr sér gengið. Þar væri hætta á vatnstjóni vegna…Lesa meira

true

Samfelld þrjátíu tíma steypa yfir Þorskafjörð

Síðastliðinn föstudag var byrjað að steypa brúargólfið á brúnni yfir Þorskafjörð í Reykhólasveit. Það er steypt í einu lagi og var tekinn fyrir helmingur brúarinnar, 130 metrar, í þessum áfanga. Stefnt er að síðari áfanginn verður steyptur eftir tvo mánuði ef tíðarfar verður hagstætt. Í þennan hluta fóru um 1.300 rúmmetrar af steypu. Steypustöð frá…Lesa meira

true

Snæfell hefja leik í kvennakörfunni í kvöld

Fyrsti leikur Snæfells á þessu keppnistímabili í 1. deild kvenna í körfuknattleik verður í kvöld á móti KR í Stykkishólmi og hefst leikurinn klukkan 19.15. Í gærkveldi tóku leikmenn meistaraflokka Snæfells rölt um hverfi bæjarins og seldu ársmiða en hann er gríðarlega mikilvæg fjáröflun fyrir félagið. Árleg spá formanna, þjálfara og fyrirliða liðanna í deildinni…Lesa meira

true

Vilja að óháð nefnd yfirfari reiknilíkan Hafró

Smábátafélagið Elding starfar á norðanverðum Vestfjörðum. Á aðafundi félagsins nýverið var samþykkt ályktun þess efnis að krefjast þess að öll reiknilíkön sem Hafrannsóknastofnun notar til ákvörðunar um ráðleggingu um heildarafla, verði rannsökuð af óháðri nefnd sem í muni sitja fiskifræðingar sem ekki starfa hjá Hafró og síðan sjómenn sem stunda alls kona fiskveiðar við Íslandsstrendur.…Lesa meira

true

Félag kvenna í atvinnulífinu ræðir ríkidæmi landsbyggðarinnar

Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) heldur ráðstefnu á Akureyri föstudaginn 23. september þar sem fundarefnið verður; „ríkidæmi landsbyggðarinnar.“ Ráðstefnan ber nafnið Eldhugar en fyrirlesarar verða konur um allt land sem hafa hugrekki og víðsýni að vopni og hafa náð að töfra fram spennandi nýsköpun og tækifæri, segir í tilkynningu frá FKA. „Við fáum að heyra…Lesa meira

true

„Ég er að draga gömlu hommana fram í dagsljósið og út úr skápnum“

Rætt við Særúnu Lísu Birgisdóttur sem hóf söfnun fyrir útgáfukostnaði bókar sinnar Særún Lísa Birgisdóttir er að gefa úr bókina Hættið þessu fikti strákar! Bókin fjallar um homma á Íslandi allt frá tímum Íslendingasagnanna og fram til eftirstríðsáranna og byggir hún á bæði BA- og MA- ritgerðum Lísu í þjóðfræði en Lísa kláraði meistaranám sitt…Lesa meira

true

Bjarki komst áfram á Evrópumótaröðinni

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson var sá eini af fimm íslenskum kylfingum sem tóku þátt í úrtökumótum fyrir DP Evrópumótaröðina í síðustu viku sem komst áfram á 2. stigið. Bjarki lék vel á mótinu sem fram fór í Austurríki og lék alls 72 holur á sjö höggum undir pari. Hann tryggði sér þátttökurétt á næsta móti sem…Lesa meira