Fjöldi látinna í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa í Evrópu 2017-2021. Ísland er í 8. sæti. Tölurnar eru teknar saman af CARE sem er samevrópskur umferðarslysagagnagrunnur. /Grafík. Vegagerðin

Ísland framarlega yfir fá banaslys

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðustu fjögur ár hefur Ísland verið í tíunda neðsta sæti á lista yfir fjölda látinna í umferðinni. Listinn er tekinn saman af CARE, sem rekur samevrópskan umferðarslysagagnagrunn. Við útreikninga á þeim lista er tekið mið af meðaltali látinna í umferðinni í hverju landi á fimm ára tímabili. Nú þegar nýr listi CARE kom út með upplýsingum um umferðarslys á árunum 2017-2021 hefur Ísland færst niður um tvö sæti. Ísland er því í áttunda sæti yfir þau lönd sem standa sig best, þ.e. fæstir látnir á hverja 100.000 íbúa. Við útreikninga á lista CARE er miðað við fjölda íbúa í landinu en ekki er tekið tillit til fjölda ferðamanna.\r\n\r\n<strong>Íslenskir ríkisborgarar tveir þriðju látinna</strong>\r\nSkessuhorn fékk staðfest hjá Samgöngustofu að sjö manns hafi látist í umferðinni á Íslandi það sem af er ári 2022, þar af eru tveir erlendir ferðamenn og fimm íslenskir ríkisborgarar.\r\nSé horft til síðustu tíu ára á Íslandi eru 19% látinna í umferðinni erlendir ferðamenn en enginn ferðamaður dó í umferðinni hér á landi árin 2020 og 2021. Þá hefur það vísast til áhrif að heimsfaraldur geisaði síðustu tvö ár og því minna um ferðamenn en ella. Um 15% látinna í umferðinni á Íslandi síðustu tíu ár eru erlendir ríkisborgarar sem búsettir eru hér á landi. Það gerir að þriðjungur þeirra sem látist hafa í umferðarslysum hér á landi frá 2012-2021 eru ferðamenn og erlendir ríkisborgarar. Eftir stendur að tveir þriðjungar þeirra sem látist hafa eru íslenskir ríkisborgarar.\r\n\r\n&nbsp;\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"56422\"]\r\n\r\n<strong>Markmið stjórnvalda að auka umferðaröryggi</strong>\r\nÍ nóvember 2019 kynntu stjórnvöld umferðaröryggisáætlun 2020-2034. Yfirmarkmið þeirrar áætlunar er tvíþætt: 1) Að Ísland verði í hópi fimm bestu Evrópuþjóða hvað varðar fjölda látinna í umferðinni á hverja 100.000 íbúa. 2) Að látnum og alvarlega slösuðum fækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2034. Þróunin er því í rétta átt fyrir Ísland til að ná fyrra markmiðinu því nú þegar hefur Ísland færst upp um tvö sæti og stendur í áttunda sæti. Seinna markmið stjórnvalda hefur ekki náðst undanfarin ár en sem dæmi voru alvarlega slasaðir 182 árið 2019, 149 árið 2020 og 199 árið 2021. Leitnin er þó í rétta átt þegar litið er til lengri tíma.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"56424\"]",
  "innerBlocks": []
}