Fréttir

true

Söngur á sumartónleikum í Saurbæ

Sunnudaginn 3. júlí klukkan 16 flytja Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Ólöf Sigursveinsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir íslensk sönglög ásamt Grieg og Schubert í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru hluti af sumartónleikaröð í kirkjunni. Aðgangseyrir er 3.000 kr. og eru allir velkomnir. Hanna Þóra Guðbrandsdóttir hóf söngnám við Tónlistarskólann á Akranesi árið 1996 og lauk síðar stigsprófi frá Söngskólanum…Lesa meira

true

Gönguleiðir eru fornleifar sem þarf að nota

UMFÍ er búið að gefa út nýja Göngubók, en þetta er 20. árið sem hún kemur út. Sem fyrr er markmiðið að hvetja fólk til þess að ganga um landið, njóta samveru með öðrum í gönguferðum og efla umhverfisvitun. Göngubókin er unnin í samstarfi við göngugarpinn Einar Skúlason og geta lesendur notað Wappið hans til…Lesa meira

true

Tvö óhöpp með skömmu millibili á gönguleiðinni að Glym

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru í tvígang kallaðar út í gær vegna fólks sem slasast hafði á gönguleiðinni að fossinum Glym í Botnsdal. Klukkan þrjú var fyrra útkallið en þá hafði kona, sem var á göngu að fossinum, hrasað og slasast á fæti. Fyrstu hópar frá björgunarsveitum voru komnir á vettvang um klukkutíma síðar og hófust…Lesa meira

true

Opinber sérfræðistörf án staðsetningar

Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða sérfræðing í málefnum barna og mun hann starfa með öðrum sérfræðingum sambandsins að verkefnum á sviði fræðslumála og félagsþjónustu. Er starfið auglýst án staðsetningar, föst starfsaðstaða geti verið utan höfuðborgarsvæðisins, að því gefnu að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda. Einnig er því haldið opnu að starfsaðastaðan…Lesa meira

true

Nýtt brautarmet slegið í kvennaflokki Snæfellsjökulhlaupsins

Snæfellsjökulshlaupið fór fram á laugardaginn og mættu 213 keppendur til leiks. Lagt var upp frá Arnarstapa, hlaupið yfir Jökulháls og endað í Ólafsvík. Andrea Kolbeinsdóttir kom fyrst í mark í kvennaflokki á nýju brautarmeti. Hún hljóp á tímanum 1:42,47. Í karlaflokki fór hinn tvítugi Bandaríkjamaður Cole Nash með sigur af hólmi en hann hljóp á…Lesa meira

true

Góð aðsókn að Háskólanum á Bifröst næsta haust

Nýverið útskrifuðust 134 nemendur frá Háskólanum á Bifröst en það var stærsta útskrift í sögu skólans. Háskólinn stendur framarlega á sviði fjarnáms og mikil áhersla lögð á það við skólann. Nýverið lauk umsóknarferli þar sem fjöldi umsókna barst fyrir næsta skólaár. Vinsælasta grunnnám fyrir næsta haust reyndist vera BA gráða í skapandi greinum en vinsælasta…Lesa meira

true

Hafsteins Sigurðssonar minnst í Stykkishólmi um helgina

„Það er ómögulegt að sjá fyrir sér sögu Tónlistarskóla Stykkishólms án þess að nafn Hafsteins Sigurðssonar verði þar fyrirferðarmikið.“ Svona fórust Jóhönnu Guðmundsdóttur skólastjóra Tónlistarskólans orð í upphafi minningargreinar um Hafstein, sem lést árið 2012 eftir harða baráttu við krabbamein. Um næstu helgi verður Landsmót harmonikuunnenda haldið í Stykkishólmi og er það helgað minningu þessa…Lesa meira

true

Íbúafundur á Akranesi um framtíðarsýn á Breiðinni og Running Tide

Í gær var haldinn íbúafundur þar sem framtíðarsýn fyrir Breiðina og fyrirtækið Running Tide var kynnt, en það er að hefja starfsemi á Akranesi og hefur þegar auglýst eftir starfsfólki. Fundurinn var haldinn í Bíóhöllinni og var ágætlega sóttur. Framsögu höfðu auk Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra; Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims, Marty Odin stofnandi Running Tide…Lesa meira

true

Írskir dagar á Akranesi hefjast á morgun

Á morgun, fimmtudag, hefst dagskrá bæjarhátíðarinnar Írskra daga á Akranesi. Búast má við líflegri stemningu næstu daga, en hátíðin stendur til sunnudags. Í boði á morgun eru m.a. myndlistarsýningar, grillveisla Húsasmiðjunnar og sundlaugapartý, en ýmsir viðburðir verða um allan bæ fram á sunnudag. Gera má ráð fyrir að fjölmennustu viðburðirnir verði brekkusöngur á Þyrlupallinum við…Lesa meira

true

Eldur kviknaði í gámi í Stykkishólmi

Slökkvilið Stykkishólms var ræst út í gær þegar eldur kom upp í gámi á svæði Íslenska gámafélagsins. Einar Þór Strand slökkviliðsstjóri segir í samtali við Skessuhorn að eldurinn hafi komið upp í pressugámi og telur hann að eitthvað hafa farið í gáminn sem ekki þoldi pressun, en gámurinn var merktur fyrir almennt sorp. Má því…Lesa meira